
Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling er látinn, 84 ára að aldri.
Tambling var markahæsti leikmaður í sögu Chelsea um áratugaskeið en hann skoraði 202 mörk í 370 leikjum fyrir félagið á árunum 1959 til 1970. Frank Lampard sló metið loks árið 2013.
Tambling skoraði í frumraun sinni aðeins 17 ára gamall og hjálpaði Chelsea meðal annars að vinna enska deildabikarinn árið 1965.
Chelsea sendi frá sér yfirlýsingu eftir andlátið.
„Chelsea hefur misst einn allra merkasta leikmann sinn með fráfalli Bobby Tambling,“ sagði meðal annars í henni.
Tambling lék einnig með Crystal Palace og spilaði þrjá landsleiki fyrir England.
Síðustu ár ævi sinnar glímdi hann við heilabilun og bjó á Írlandi þar sem hann starfaði síðar sem þjálfari.