fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað

Pressan
Fimmtudaginn 4. júní 2026 08:32

Skemmdirnar á húsinu eru verulegar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður í Butler-sýslu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum er sakaður um að hafa valdið miklum skemmdum á heimili fjölskyldu sinnar með gröfu eftir að eiginkona hans sagði honum að hjónabandi þeirra væri lokið.

Í frétt CBS kemur fram að atvikið hafi átt sér stað í síðustu viku í bænum Buffalo Township.

Hinn ákærði, Eric Pierwsza, 48 ára, notaði gröfu til að rífa niður hluta húss fjölskyldunnar á meðan eiginkona hans og tvær dætur þeirra voru enn inni.

Rannsakendur segja skemmdirnar vera það umfangsmiklar að efasemdir hafi vaknað um burðarþol hússins. Samkvæmt frétt CBS hafði Pierwsza komið heim eftir að hafa drukkið alla nóttina og farið að rífast við eiginkonu sína.

Þegar hún hafi tilkynnt honum að hjónabandinu væri lokið er hann sagður hafa svarað með hótun. Að sögn rannsakenda sagði hann: „Ef þessu er lokið, þá ríf ég húsið niður.“

Lögregla segir að hann hafi skömmu síðar farið upp í gröfuna og hafið niðurrif á húsinu.

Eftir að skemmdarverkunum lauk er Pierwsza sagður hafa farið aftur inn í húsið, tekið íþróttatösku og yfirgefið vettvang. Hann var síðar handtekinn eftir að hafa ekið á brott í bifreið sinni.

Nágrannar sem ræddu við bandarísku sjónvarpsstöðina KDKA-TV sögðust eiga erfitt með að skilja hvað hefði gerst. Einn þeirra, sem sagðist þekkja Pierwsza persónulega og hafa farið með honum til veiða, lýsti honum sem miklum útivistarmanni og sagðist vera sleginn yfir málinu

Pierwsza hefur verið ákærður fyrir meðal annars að valda stórfelldri hættu, stofna öðrum af í hættu og óspektir á almannafæri. Samkvæmt dómsskjölum hugðist eiginkona hans einnig sækja um nálgunarbann gegn honum í kjölfar atviksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil

Segir Buckinghamhöll hafa leynt sönnunargögnum gegn Andrew um árabil
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“

Trump hellti sér yfir Netanyahu og sagði honum til syndanna – „Allir hata þig núna“
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð