fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

Reyna að sundra Bandaríkjunum og Kanada

Pressan
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 21:30

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínversk stjórnvöld reyna með opinskáum hætti að hvetja kanadísk stjórnvöld til að slíta sig í auknum mæli frá Bandaríkjunum. Er talið líklegt að þau muni nýta tækifærið og reyna að ýta undir gjá á milli þessara bandamanna til áratuga þegar Mark Carney forsætisráðherra Kanada kemur í opinbera heimsókn til Kína á morgun.

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sýnt Kanada töluverðan fjandskap með til að mynda yfirlýsingum um að innlima landið í Bandaríkin. Forsetinn hefur einnig sagt ranglega að Kanada hafi aldrei gert Bandaríkjunum neitt gott og hefur einnig verið harður í horn að taka þegar kemur að viðskiptum milli þjóðanna og beitt tollum miskunnarlaust gegn nágrannaríkinu í norðri, sem treyst hefur mjög á viðskipti við Bandaríkin.

Kanadamenn minna á góðvild sína á dimmasta degi Bandaríkjanna

Fram kemur í umfjöllun AP-fréttastofunnar að í ríkisfjölmiðlum í Kína séu Kanadamenn hvattir til þess að móta sér utanríkisstefnu sem sé óháðari Bandaríkjunum en verið hefur síðustu áratugi.

Segir í umfjölluninni að í ljósi versnandi samskipta Kanada og Bandaríkjanna og framferðis síðarnefnda ríkisins gegn öðrum vestrænum ríkjum sjái stjórnvöld í Kína sér nú leik á borði til að skapa gjá þarna á milli en ætli sér ekki að ana að neinu í þeim efnum.

Carney segir ferð sína til Kína aðallega snúast um viðskipti og að gera Kanada minna háð viðskiptum við Bandaríkin.

Bæta sambandið

Um leið vill Carney bæta samband Kanada og Kína sem varð nokkuð stirt í stjórnartíð forvera hans Justin Trudeau meðal annars vegna handtöku stjórnanda í kínversku tæknifyrirtæki árið 2018, að beiðni Bandaríkjanna, og því að settir voru, eftir forskrift Bandaríkjanna, tollar á kínverska rafbíla og stál og ál. Kína lagði á móti tolla á sumar kandadískar útflutningsvörur einkum matvæli.

Í kínverskum ríkisfjölmiðlum hefur verið lögð áhersla á þessar aðgerðir kanadískra stjórnvalda hafi snúist um, í samvinnu við Bandaríkin, um að halda aftur af Kína. Kanada geti nú hins vegar forðast slíkt með auknu sjálfstæði í málefnum sem snúi að Kína.

Kínverskir fræðimenn á sviði alþjóðamála segja Kína og Kanada geta sameinast í andstöðu við meðal annars hótanir Trump um að taka yfir Grænland og í ljósi þess hljóti Kanadamenn að hafa áhyggjur af hugsanlegri árás Bandaríkjanna á Kanada.

Ljóst þykir þó að takmarkaðar líkur séu á því að Kínverjum takist að stuðla að algeru rofi í samskiptum Kanada og Bandaríkjanna. Kanada eins og fleiri ríki óttast aukinn hernaðar- og efnahagsmátt Kína og það er ekki hægt heldur að líta framhjá sögulegum og menningarlegum tengslum Bandaríkjanna og Kanada sem eins og fleiri ríki stendur einnig frammi fyrir því að keppa við ódýran útflutning og vinnuafl frá Kína. Ljóst er einnig að Kanada og Kína eru ekki sammála í mannréttindamálum og um framtíð Taiwan.

Framferði Trump gegn Kanada gefur landinu aukin tækifæri á auknum samskiptum við Kína en kanadísk stjórnvöld þurfa þó að leika ákveðna jafnvægislist í þessum efnum enda treysta þau enn eins og raunin er í flestum vestrænum ríkjum á hernarðar- og efnahagsmátt Bandaríkjanna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði