fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Rúmenskri vændiskonu vísað úr landi – Var með mikið af smokkum en sagðist vera með ofnæmi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. apríl 2026 08:00

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun rúmenskrar konu frá landinu vegna gruns um hún ætlaði sér að stunda vændi hér á landi. Konan neitaði því að hún væri hingað komin til að stunda vændi. Það fannst hins vegar í fórum hennar mikið magn af smokkum, undirfötum og lyf til hreinsunar á kynfærum. Vildi konan þó meina að hún væri með ofnæmi fyrir því efni sem smokkar eru yfirleitt gerðir úr, latex. Konan var einnig með virka aðganga á vændiskaupasíðu og hafði fengið skilaboð úr íslenskum farsímanúmerum með óskum um þjónustu hennar. Þótt hún neitaði því að hafa ætlað að stunda vændi á Íslandi var krafa hennar um ógildingu frávísunar frá landinu rökstudd meðal annars með því að það væri ekki refsivert að selja vændi hér á landi.

Konunni var frávísað frá landinu í nóvember síðastliðnum en kærði frávísunina til nefndarinnar tveimur dögum síðar.

Vísaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum konunni frá landinu vegna allsherjarreglu, almannaöryggis og lýðheilsu.

Í samantekt lögreglu á málavöxtum kom fram að 12. nóvember 2025, hafi tollvörður gefið sig á tal við lögreglu vegna gruns um að konan væri komin hingað til lands til að stunda vændisstarfsemi. Tollvörður greindi lögreglu frá því að konan hefði haft meðferðis mikið magn af smokkum, undirfötum og lyfjum til hreinsunar á kynfærum.

Veitingastaður og ofnæmi

Konan sagðist vera komin til Íslands til þess að vinna á tilteknum veitingastað. Hún gat ekki framvísað ráðningarsamningi. Sagðist konan ætla að gista á heimili vinkonu sinnar sem væri að vinna á þessum sama veitingastað. Við nánari athugun lögreglu á opinberum skráningum hafi hins vegar komið í ljós að umrædd vinkona konunnar hafi verið atvinnulaus. Konan reyndist hafa komið hingað til lands í nokkur skipti frá árinu 2023.

Í farsíma konunnar fundust upplýsingar um aðgang að vændissíðu í Rúmeníu.

Lögregla sagði konuna ekki hafa getað svarað því fyllilega af hvaða ástæðum hún væri með mikið magn af smokkum, undirfatnaði og lyfjum til hreinsunar á kynfærum meðferðis. Hún hefði sagst vera með ofnæmi fyrir latexi og þyrfti á lyfjunum að halda. Þá væru undirfötin hennar stíll.

Við skoðun á farsíma konunnar hafi mátti sjá að hún hafi oft sótt tiltekna vefsíðu sem auglýsi vændi með staðsetningu stillta á Reykjavík. Hafi konan sagst hafa verið að athuga og leita að aðgangi sem hafi stolið myndum af vinkonu hennar sem búsett væri í Rúmeníu. Við skoðun á framangreindri vefsíðu hafi komið fram netfang konunnar í innskráningarflipa, en notendur síðunnar fái senda slóð á netfang til að nálgast aðgang sinn og upplýsingar. Við skoðun hafi komið í ljós að konan hafi átt fimm aðganga tengda við netfang hennar og aðgangarnir allir verið auglýstir á Íslandi.

Hún hafi gert aðgangana óvirka þannig að þeir kæmu ekki upp við hefðbundna leit. Þá hafi hún ekki getað útskýrt það nánar. Þá hafi konan jafnframt notað tiltekna áskriftarsíðu til að selja myndir og myndbönd. Í farsíma hennar hafi einnig verið skilaboð frá íslenskum farsímanúmerum sem bæru með sér að þjónustu hennar hafi verið óskað. Þá hafi tilteknir aðilar lagt inn á reikning vinkonu hennar og sent henni skjáskot af millifærslunni. Hún greindi frá því að einn af þessum aðilum væri vinur hennar og hann væri að sækja hana á flugvöllinn, en sá aðili hafi reynt að hringja í hana á meðan á viðtali hennar hjá lögreglu stóð. Í farsíma konunnar hafi verið skilaboð frá þessum aðila þar sem hann hafi beðið hana um að koma til sín og boðið henni greiðslu. Hún hafi ekki getað útskýrt þessi skilaboð nánar. Þeim aðila hafi verið flett upp í kerfum lögreglu og komið í ljós að hann hafi verið kærður fyrir kaup á vændi.

Ekki refsivert

Konunni var í kjölfarið frávísað frá landinu og hélt hún af landi brott.

Í kæru hennar var meðal annars vísað til þess að það væri ekki refsivert hér á landi að selja vændi og því þyrfti skýrari rökstuðning en að hún hefði slíkt í hyggju til að réttlæta frávísun hennar frá landinu. Rökstuðning skorti og ef vísa ætti henni frá landinu á grundvelli almannaöryggis og allsherjarreglu þyrfti að liggja fyrir áhættumat. Hún væri EES-borgari og hefði nægt fé til framfærslu og hefði verið komið með vinnu á veitingastaðnum. Það lægi ekki fyrir að gripið hefði verið til aðgerða gegn íslenskum vændiskonum og með frávísun hennar hefði verið gerður greinarmunur á íslenskum ríkisborgurum og borgurum annarra EES-ríkja. Þar með hefði jafnræðis ekki verið gætt.

Þótt konan neitaði því að hafa ætlað sér að stunda vændi hérlendis þá var í kærunni ítrekað minnt á að það væri ekki refsivert að selja vændi á Íslandi og vísað einnig til ákvæða stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi.

Staðfest og ekki hvetjandi

Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála er minnt á að samkvæmt lögum um útlendinga sé heimilt að vísa borgurum EES-ríkja frá landinu ef það sé talið nauðsynlegt vegna allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis. Hugtökin allsherjarregla og almannaöryggi séu ekki skilgreind nánar í íslenskum lögum. Samkvæmt Evróputilskipun sé þetta heimilt en ráðstafanir af því tagi séu háðar mati á því hvort persónuleg hegðun viðkomandi feli í sér raunverulega og nægilega alvarlega ógn gegn grundvallarhagsmunum samfélagsins. Í leiðbeiningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um túlkun umræddrar tilskipunar komi fram að almannaöryggi nái til innra og ytra öryggis ríkis og allsherjarregla komi í veg fyrir að unnið sé gegn þjóðskipulaginu. Þá komi þar fram að skýra þurfi framangreind skilyrði þröngt.

Nefndin segir ljóst að þegar sú breyting var gerð á lögum að sala vændis yrði refsilaus hafi ætlunin ekki verið að hvetja til slíkrar háttsemi eða lögleiða vændi heldur væri markmiðið þvert á móti að hjálpa þeim einstaklingum sem hafi mátt þola erfiðar aðstæður í stað þess að refsa þeim. Minnir nefndin á að kaup og milliganga um sölu vændis séu refsiverð. Þótt það að stunda vændi sé ekki refsivert sé slík starfsemi þó þess eðlis að geta talist ógna allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði í skilningi laga um útlendinga, m.a. með vísan til hugsanlegra aðstæðna þeirra sem stundi slíka starfsemi, tengsla starfseminnar við skipulagða brotastarfsemi, svo sem mansal, og ógn hennar við grundvallarhagsmuni samfélagsins.

Með vísan til gagna málsins tekur nefndin undir það með Lögreglustjóranum á Suðurnesjum að það sé ótrúðverðugt að konan hafi komið hingað til lands til að vinna á veitingastað. Málsgögnin bendi þvert á móti til þess að konan hafi komið hingað til að stunda vændi. Koma konunnar til landsins hafi þar af leiðandi verið ógn við allsherjarreglu í skilningi laga um útlendinga.

Frávísun hennar frá landinu er því staðfest.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Í gær

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Í gær

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Í gær

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Í gær

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara