fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

„Nýi Nostradamus“ með ótrúlegan spádóm um framtíðina hjá Donald Trump

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 21:30

Hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir Trump? Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðast margir telja sig gædda hæfileikum að geta spáð fyrir um framtíðina og sumir gera tilkall til þess að vera kallaðir „Nýi Nostradamus“. Svo er auðvitað fólk sem telur að þessir spádómar rætist og hefur fulla trú á spámönnunum.

Einn þeirra er Bretinn Craig Hamilton-Parker, sem er kallaður „Nýi Nostradamus“ af áhangendunum sínum.

Hann segist hafa spáð fyrir um stóra atburði á borð við Brexit og heimsfaraldur kórónuveirunnar.

Nú beinir hann sjónunum, og spádómsgáfunni, að Bandaríkjunum og spáir fyrir um atburði sem ganga gegn gildandi leikreglum. Mirror skýrir frá þessu.

Hann segir ekki útilokað að Donald Trump muni taka þriðja kjörtímabilið sem forseti þrátt fyrir að stjórnarskráin kveði á um að enginn megi gegna forsetaembættinu lengur en í tvö kjörtímabil.

Hann segir að heimurinn stefni inn í svo mikið breytingaskeið að gildandi reglur muni eiga í vök að verjast. „Ég hef á tilfinningunni að það verði stór alþjóðleg deila, hugsanlega verður Taívan hluti af henni,“ sagði hann.

Hann benti á vaxandi spennu víða umheim sem hugsanlegan drifkraft á bak við breytingar í hinu pólitíska kerfi.

Hann benti á að þróun mála núna sé í þá átt að atburðir, sem áður þóttu óhugsandi, geti orðið að veruleika. Hann sagði þetta geta leitt til þess að ákvarðanir verði teknar sem reyna á viðteknar lýðræðislegar venjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið