fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 18:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þú ert að taka við nýju húsi eða íbúð, þá er það tómt og því kjörið tækifæri að þrífa það hátt og lágt. Þannig getur fjölskyldan flutt inn í hreint og gott umhverfi og það skiptir máli því enginn vill taka við drasli og drullu fyrri íbúa.

Southern Living segir að þegar þrifið er áður en flutt er inn í nýtt húsnæði, þá sé best að þrífa eftirfarandi hluti vel og vandlega.

Eldhústæki – Þetta er eitt það mikilvægasta að sögn Southern Living. Þrífðu eldavélina, ofninn og ísskápinn áður en fita og drulla byrjar að safnast fyrir við daglega notkun þessara tækja. Nýttu þér að allt er tómt, þú getur fært tækin úr stað og þrifið bak við þau og undir.

Skápar – Þrífðu skápana vel áður en þú setur nokkuð í þá. Kannaðu líka hvort það leki einhvers staðar, hvort það sé mygla eða ummerki eftir meindýr. Það er miklu auðveldara að leysa þessi vandamál áður en þú flytur inn.

Baðkar og sturta – Sótthreinsaðu baðkarið, flísarnar og samskeyti. Southern Living segir að jöfn blanda vatns og hvíts ediks sé frábær til að losna við sápuleifar. Notaðu tækifærið til að kanna hvort niðurföllin séu stífluð.

Klósettið – Það er nú ekki það mest spennandi að þrífa klósett en það þarf víst að gera það. Þrífðu það hátt og lágt, að innan sem utan. Ef setan er mislit, þá ættirðu að setja nýja.

Hurðarhandföng og innstungur – Það safnast oft ryk og fingraför á þessa fleti. Notaðu rakan klút með sápu eða sótthreinsiefni og mundu að láta ekki of mikinn raka koma nálægt innstungunum.

Lofttúður – Þrífðu lofttúðurnar mjög vel til að koma í veg fyrir að ryk og hár sé á ferðinni um heimilið. Ryksugaðu þetta og gættu sérstaklega vel að lofttúðunum á baðherberginu.

Loftljós og lampar – Hreinsaðu ryk af loftljósum og lömpum og þvoðu skítugt gler.

Listar og hurðarkarmar – Notaðu rakan klút til að þrífa dyrakarma, gólflista og ramma. Byrjaðu efst og farðu niður á við.

Gólfin – Það er snilldarráð að þrífa gólfin vel áður en flutt er inn. Ryksugaðu og skúraðu allt húsnæðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið