fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. apríl 2026 10:26

María Kjartansdóttir. Mynd: Pósturinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Kjartansdóttir er nýr sjálfbærnistjóri Póstsins. Áfram verður lögð áhersla á að draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins og axla samfélagsábyrgð með traustri og ábyrgri þjónustu um allt land, eins og segir í tilkynningu frá Póstinum.

„María býr yfir víðtækri reynslu þegar kemur að sjálfbærni og stefnumótun og hefur meðal annars leitt verkefni sem hafa snúið að upplýsingagjöf og innleiðingu laga, reglugerða og ýmissa staðla, þar á meðal á sviði umhverfisstjórnunar,” segir Gunnar Þór Tómasson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Póstsins.

María lauk MSc-gráðu í umhverfis – og auðlindafræði frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, með áherslu á samfélagsábyrgð fyrirtækja og umhverfisstjórnun, og hefur starfað á því sviði í meira en áratug. Hún kemur til Póstsins frá Landsvirkjun þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri í sjálfbærni og mun koma til með að vinna með starfsfólki Póstsins á mörgum sviðum, til að mynda fjármálasviði.

María segist spennt fyrir starfinu og komandi verkefnum. „Pósturinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þar eru tækifæri til að draga úr umhverfisáhrifum og skapa aukið virði með markvissri sjálfbærnivinnu. Ég hlakka til að vinna með öflugu teymi Póstsins og halda áfram því metnaðarfulla sjálfbærnistarfi sem þar hefur þegar verið unnið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“