fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. apríl 2026 11:11

Jón Magnús Jónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Ísfugls, Oddur Örnólfsson, framkvæmdastjóri Eldum rétt, Helgi B. Sigurðsson, sölustjóri Ísfugls, Jón Arnar Jónsson, innkaupa- og framleiðslustjóri Eldum rétt ánægðir með aukið samstarf fyrirtækjanna Mynd: Arna Petra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldum rétt og Ísfugl gerðu nýverið með sér samning um að héðan í frá verði allur ferskur kjúklingur í matarpökkum Eldum rétt frá Ísfugli. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.

„Við höfum átt í virkilega farsælu samstarfi og með aukinni framleiðslugetu hjá Ísfugli voru loksins forsendur fyrir því að auka samstarfið enn frekar. Þar með er allur ferskur kjúklingur í okkar réttum frá íslenskum bændum,“ segir Oddur Örnólfsson framkvæmdastjóri Eldum rétt.

„Eldum rétt og Ísfugl eru fyrirtæki sem deila grunngildum hvað varðar gæði og góða þjónustu og við erum virkilega stolt af því að geta aukið okkar samstarf og haldið áfram að sjá það vaxa og dafna,” segir Oddur enn fremur.

„Það er mjög ánægjulegt að geta þétt okkar ágætu samvinnu enn frekar. Við munum leggja allt okkar kapp á að gæði, hollusta og ferskleiki skili sér á disk neytenda. Á pakkningum Ísfugls geta neytendur séð frá hvaða búi varan kemur,  allt okkar kjöt, ferskt og óunnið er rekjanlegt til bónda,” segir Jón Magnús Jónsson, bóndi og framkvæmdastjóri Ísfugls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“