fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 17. apríl 2026 10:30

Mynd: Kopavogur.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að meiri- og minnihluti í bæjarráði Kópavogs líti fjármál bæjarins gerólíkum augum. Minnihlutinn vill meina að staðan sé ekki góð og að sala á byggingarrétti, á síðasta ári, sem aðeins sé hægt að treysta á einu sinni, sé það sem fyrst og fremst hafi haldið rekstrinum réttu meginn við núllið á síðasta ári. Meirihlutinn vill hins vegar meina að það sé augljóst að rekstur bæjarins gangi vel og það sé engin ástæða til að halda öðru fram.

Ársreikningur bæjarins fyrir síðasta ár var samþykktur á fundi bæjarráðs í gær og vísað til bæjarstjórnar. Afgangur varð af A-hluta rekstrarins, þ.e. bæjarsjóðs, alls 4,2 milljarðar króna en þegar B-hlutinn, fyrirtæki bæjarins, er tekinn með í reikninginn er afgangurinn 4,6 milljarðar.

Minnihluti bæjarráðs sem er skipaður fulltrúum Pírata, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Vina Kópavogs vill hins vegar meina að málið sé alls ekki svona einfalt.

Í bókun minnihlutans á fundi bæjarráðs segir:

„Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær án lóðasölu.“

Minnihlutinn vill meina að hefðbundinn rekstur bæjarins standi ekki undir sér. Raunin sé sú að reksturinn 2025 skili 406 milljóna króna halla. Jákvæð rekstrarniðurstaða byggist ekki á sjálfbærum rekstri heldur á 4,6 milljarða króna tekjum af sölu byggingarréttar. Samtals sé halli af rekstri bæjarins á þessu kjörtímabili um 3 milljarðar króna, ef lóðatekjur séu frátaldar.

Ekki endurtekið

Sala lóðarréttinda í Vatnsendahvarfi verði ekki endurtekin. Tekjur af lóðasölu séu ófyrirsjáanlegar og geti aldrei tryggt traustan daglegan rekstur sveitarfélagsins. Til þess þurfi að gæta ábyrgðar. Rekstrartekjur og fyrirséðar tekjur eigi að standa undir rekstrarútgjöldum. Það hafi ekki verið raunin hjá Kópavogsbæ. Ekki sé gert ráð fyrir tekjum af lóðasölu í fjárhagsáætlun. Þess í stað sé látið í veðri vaka að hagkvæmni í rekstri skili þeim afgangi sem innan hvers árs verði til vegna lóðasölu.

Fjárfestingarstig bæjarins hafi frá 2024 hækkað um 2,3 milljarða króna og ekki fáist upplýsingar um framgang og framúrkeyrslu einstakra verkefna þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Veltufé frá rekstri sé 8 prósent lægra en áætlun hafi gert ráð fyrir. Veikur undirliggjandi rekstur samhliða miklum fjárfestingum, kalli á skýra stefnu og ábyrgari fjármálastjórn:

„Það er ekki sjálfbært að treysta á sölu eigna til að gefa mynd jákvæðrar niðurstöðu í rekstri. Það er engum til gagns að draga upp ófullkomna og fegraða mynd til að leyna stöðu sem er grafalvarleg. Kópavogsbúar eiga betra skilið.“

Allt í góðu lagi

Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks svaraði að bragði með bókun og sagði að þvert á móti væri rekstur bæjarins í góðum málum.

Í bókuninni segir að síðustu tvö ár hafi verið þau bestu í rekstrinum undanfarin 18 ár. Sterk staða bæjarins birtist skýrt í ársreikningi síðasta árs og sé afrakstur markvissrar forgangsröðunar og ábyrgra ákvarðana í rekstri. Þegar búið sé að leiðrétta fyrir sölu lóðaréttinda sé rekstur samstæðunnar að skila 4,8 milljörðum króna:

„Það er því einfaldlega rangt að halda því fram að daglegur rekstur sé ekki sjálfbær.“

Fjárhagsleg staða bæjarins haldi áfram að styrkjast. Heildarskuldir og skuldbindingar lækki að raunvirði og skuldahlutfall fari lækkandi þrátt fyrir miklar og nauðsynlegar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum innviðum.

Ávinningi af góðum rekstri hafi verið skilað í formi lægri skatta en fasteignagjöld hafi lækkað að raunvirði á kjörtímabilinu og séu þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu.

Berja sér á brjóst

Minnihlutinn svaraði með annarri bókun þar sem segir að auðvelt sé fyrir meirihlutann að berja sér á brjóst þegar 4,6 milljarðar króna vegna eignasölu í formi byggingarréttar séu kynntir sem hagkvæmni í rekstri. Ekki liggi fyrir í fjárhagsáætlunum Kópavogsbæjar til hvaða viðfangsefna ráðstafa eigi ávinningi af sölu byggingarréttar. Ekki sé heldur hægt að rekja það gegnum ársreikninginn. Ítrekaðar fyrirspurnir hafi ekki skilað svörum. Þetta eigi ekki bara við árið 2025 heldur allt kjörtímabilið. Veltufé frá rekstri Kópavogsbæjar dugi varla fyrir helmingi fjárfestinga og þá séu ótaldar afborganir lána sem kalli á lántöku til framtíðar:

„Því er reksturinn ósjálfbær með öllu.“

Meirihlutinn svaraði að bragði en var ekki langorður í það skipti:

„Árangurinn af góðum rekstri er augljós og birtingarmyndirnar eru margar. Afkoman er jákvæð og heildarskuldir halda áfram að lækka.“

Svar óskast

Minnihlutinn svaraði þessu með því að ítreka fyrri fyrirspurn sína. Hún var lögð fram fyrir fimm vikum síðan en minnihlutinn segir svar ekki enn hafa borist. Spurt hafi verið um  um innstreymi í bæjarsjóð Kópavogs vegna byggingarréttargjalda og annarra lóðagjalda frá upphafi kjörtímabils:

„Því er beint til bæjarstjóra að svar verði látið í té án frekari dráttar enda er um að ræða lögmæta, málefnalega og mikilvæga fyrirspurn, sem hefur grundvallarþýðingu í umfjöllun og umræðu um ársreikning og í samanburði á fjárhagsáætlunum og ársreikningum. Ekki er við það unandi að svar sem einfalt ætti að vera að keyra út úr bókhaldi bæjarins sé ekki veitt.“

Meirihlutinn taldi það vera auðsótt mál að leggja slíkt svar fram. Þetta mætti lesa úr ársreikningnum. Ekkert sé því til fyrirstöðu að umbeðnar upplýsingar verði teknar saman og lagðar fram núna þegar ársreikningur liggi fyrir.

Frekari bókanir voru ekki lagðar fram á fundinum. Ljóst er að minni- og meirihluti í Kópavogi eru alfarið ósammála um stöðu fjármála bæjarins. Hvort og þá hvaða áhrif það kann að hafa á baráttuna fyrir bæjarstjórnarkosningar í næsta mánuði á eftir að koma í ljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað
Fréttir
Í gær

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Í gær

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Í gær

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Í gær

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara