fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 17. apríl 2026 19:00

Ekki finnst öllum þægilegt að sjá dróna svífa fyrir utan gluggann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drónaflug er farið að valda mörgu fólki ama, einkum ef drónar fljúga nálægt íbúðarhúsum og stoppa kannski lengi fyrir utan glugga. Telja sumir dróna notaða við njósnir eða sem undirbúning fyrir innbrot.

„Ég bý í Rima og þetta er ekki í fyrsta skipti sem drónar eru flognir yfir mér. Í dag var einstaklingur að fljúga dróna mjög nálægt húsunum, og þegar ég fór út til að taka upp það sem ég taldi vera brot á reglum, lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt,“ segir kona, búsett í Grafarvogi, í íbúagrúbbu á samfélagsmiðlum. Reyndist bílnúmerið vera falið.

Öryggi og friðhelgi

Vísar hún til íslenskra og evrópskra reglna um drónaflug. Það er að það sé bannað nálægt fólki og heimilum, vegna öryggis og friðhelgi einkalífs.

„Svo spyr ég: Hvað eigum við að gera í svona tilfellum? Ég vil ekki þurfa að hafa áhyggjur inni á mínu eigin heimili um hver gæti verið að horfa inn um gluggann minn á þriðju hæð. Fyrir utan það felur þetta í sér hættu – dróni getur valdið alvarlegum meiðslum, sérstaklega þegar börn eru úti að leika sér, eins og oft er um klukkan 17:30,“ segir konan í færslunni sem hefur fengið mikil viðbrögð.

Skipuleggja innbrot

„Dróni flaug mjög nálægt, skipulega og hægt með fram gluggum flestra blokka Húsahverfisins fyrir nokkrum mánuðum,“ segir einn Grafarvogsbúi í athugasemdum. „Það var erfitt að ímynda sér annað en að þetta væri njósnaflug og undirbúningur fyrir innbrot því flugið var mjög agað og augljóst að það var verið að skoða inn um glugga.“

„Hef heyrt að þjófar eru að nota dróna til að skipuleggja innbrot og hvaða leið er best. Athuga hvort fólk sé heima,“ segir einn maður.

Fylgt eftir

Þá geti einnig verið um aðarar annarlegar hvatir að ræða. Það er persónunjósnir.

„Þegar ég sé dróna sem er kyrr óvenju lengi gef ég honum fingurinn,“ segir ein kona. „þá iðulega er honum flogið snögglega á brott …svo jú það eru sumir að nota þetta til að njósna um fólk sem er ógeðslegt! Þetta ætti að banna í þéttbýli því friðhelgi einkalífs er enn í gildi.“

„Þetta getur verið alveg óþolandi. átti heima í Laufengi, þar var maður kannski að labba með hundinn sinn og dróna í leiðinni…. (fylgdi manni á eftir),“ segir önnur.

Þjófur, perri eða fasteignasali?

Sumir benda á að það geti verið ástæða fyrir drónaflugi af þessum toga. Svo sem að um sé að ræða ljósmyndara á vegum fasteignasölu.

„Ef það er ekki verið að elta eða horfa inn eða annað óviðeigandi fynnst mér allt í lagi að fólk leiki sér með dróna. Annars þurfum við líka að hafa afskipti af öllum sem eru með síma á lofti því það gæti verið að taka mynd af okkur,“ segir einn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað
Fréttir
Í gær

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Í gær

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Í gær

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Í gær

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara