fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. apríl 2026 11:32

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt um átta leitið í gærkvöldi voru björgunarsveitirnar Ingunn á Laugarvatni, Tintron í Grímsnesi og Björgunarfélag Árborgar kallaðar út á hæsta forgangi vegna slasaðs einstaklings við Davíðsgjá sem er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni.

Björgunarsveitir frá Selfossi, Laugavatni og Grímsnesi voru boðaðar út á F1 vegan einstaklings sem hafði slasast við sund í Davíðsgjá í Þingvallavatni.
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Þar hafði hópur verið við sund í gjánni og einn þeirra lenti í gjótu og slasast nokkuð á fæti með talsverðum blæðingum.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu kemur fram að ásamt björgunarsveitum fór sjúkraflutningalið frá Selfossi á staðinn ásamt lögreglu.

Viðbragð var skjótt og aðeins átta mínútum eftir útkall voru bílar lagðir af stað frá öllum sveitum.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ljóst var frá upphafi að nokkur vinna yrði að koma þeim slasaða þangað sem sjúkrabíll komst og fóru hópar strax í að koma upp línum og tryggingum til að undirbúa að koma þeim slasaða á sjúkrabörum upp úr gjánni.

Eftir að hlúð hafði verið að honum hófst sú vinna við að bera hann upp úr gjánni og að sjúkrabíl en fara þurfti á annað hundrað metra yfir úfið hraun og kjarri vaxið land.

Þegar búið var að lyfta börunum upp úr gjánni þar sem hópur björgunarmanna leysti það með mikilli samvinnu, var hægt að koma hjóli undir sjúkrabörurnar og létta undir síðasta spölinn.

Um klukkan 21:30 var sá slasaði kominn í sjúkrabíl. Björgunarmenn héldu svo heim að loknum frágangi á vettvangi.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“