
„Ummm, fyrirgefðu,“ umlaði hann eldrauður í framan, bæði af skömm og vegna erfiðisins.
„Ég var í hremmingum í því sem ég vonaðist til að yrði ástríðufullt kynlíf með Tom (28 ára), þegar ég neyddist til að stýra typpi þessar einnar nætur gamans míns í rétt gat.“
Svona sagði kona ein frá óvenjulegri upplifun sinni í kjölfar stefnumóts. Í samtali við Metro sagði hún að hún hafi allra síst átt von á að þurfa að kenna honum kynlíf þegar þau fóru heim til hennar. En hann hafi ítrekað sett typpið inn í endaþarm hennar þessa nótt.
„Þetta var vandræðalegt, svo ekki sé meira sagt,“ sagði hún um þessa upplifun sína í samtali við Metro.
Hún sagðist hafa komist í samband við Tom í gegnum stefnumótaapp og þau hafi hist á bar og farið vel á með þeim. Þegar þau voru búin með drykkina sína hafi þau farið heim til hennar og ekki hafi liðið á löngu þar til þau voru nakin og hún hafi reiknað með að nú væri allt að fara í gang.
Hún sagði að viðvörunarbjöllurnar hefðu nú kannski átt að hringja hjá henni þegar Tom átti í miklum erfiðleikum með að setja smokk á sig. Það hafi þó tekist að lokum og hann hafi skriðið brosandi í átt til hennar. „Ég var aftur tilbúin og fann hönd hans stýra typpinu á meðan ég lá ofan á honum. „Úps! Ég fann að hann var að fara í rangt gat.“
„„Fyrirgefðu,“ sagði hann þegar hann áttaði sig á þessu og reyndi aftur. Og hann gerði þetta aftur og aftur. Þá settist ég upp og horfði á hann og sá hversu ringlaður og skömmustulegur hann var. „Prófum aðra stellingu,“ sagði ég.““
Þá tókst þetta að hennar sögn en hins vegar hafi samfarirnar verið mjög stuttar og hún hafi ekki fengið neitt út úr þeim. Hann hafi lagst við hliðina á henni og sofnað nær strax.
Nokkrum vikum siðar var hún að skrolla í gegnum stefnumótaappið í leit að öðru einnar nætur gamni, þegar hún sá að Tom hafði sent skilaboð og komu þau henni mjög á óvart.
„Ég sagði þér þetta ekki af því að ég var hræddur, en ég var hreinn sveinn þegar ég hitti þig.“
„28 ára hreinn sveinn eða hrein mey er ekki svo undarlegt. Ég þekki fólk sem hefur beðið með að stunda kynlíf fram að giftingu og í mörgum samfélögum og trúarbrögðum er kynlíf aðeins stundað til að búa til börn. Það sem mér brá mest yfir, var að hann sagði mér þetta ekki. Ef hann hefði sagt mér að þetta væri fyrsta skiptið hans, þá hefðum við gert þetta hægar, ég hefði verið blíðari og hefði svo sannarlega hjálpað honum að skilja hvað hann ætti að gera. Skömmin og vandræðagangurinn, sem hann fann fyrir, gerði mig leiða og ég vildi óska að ég hefði getað gert fyrsta skiptið hans miklu betra,“ sagði hún.