fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Neita að setja gervineglur á fermingarbörn

Ritstjórn DV
Mánudaginn 20. apríl 2026 07:30

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Mynd: Bvasilev1-Wikimedia-CC BY 4.0

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Danmörku eins og Íslandi er um þetta leyti árs mikið um fermingar en þar í landi mun töluvert vera um að fermingarbörn, ekki síst stúlkur, vilji láta setja á sig gervineglur í tilefni tímamótanna. Nokkuð er hins vegar um að naglafræðingar þar í landi neiti að taka slíka þjónustu að sér og vísað er þá til þess að efnin í neglunum séu skaðleg börnum.

TV2 fjallar um þetta og ræðir við naglafræðinginn Mariyah Traasdahl. Hún segir efnin í neglunum alls ekki örugg fyrir börn á fermingaraldri og fleiri kollega hennar hafa tekið undir með henni og neitað að veita þessum aldurshópi slíka þjónustu. Einn kollegi hennar varar við því að gervineglur, sem eru aðallega úr geli eða akrýl, geti valdið varanlegu ofnæmi hjá börnunum en það munu einkum vera efnasamböndin akrýlöt sem valda þessu. Akrýlöt erta húðina en ef magnið er nægilega lítið eru minni líkur á því en það þarf minna af þeim til að hafa slík áhrif á börn heldur en fullorðna en áhrifin geta verið misjöfn eftir einstaklingum.

Rebecca Søgaard læknir sem hefur rannsakað ofnæmi fyrir akrýlötum segir tíðni þess hafa aukist mikið og rannsóknir á húðlækningadeild sjúkrahússins í Gentofte, sem er norður af Kaupmannahöfn, bendi til að níu prósent ungra kvenna séu haldnar því. Tíðnin hafi þar af leiðandi fjórfaldast á síðustu 10 árum sem sé mikið áhyggjuefni.

Harðna

Akrýlötin munu einkum vera í vökvanum sem notaður er til að festa gervineglurnar en til að gera vökvann öruggan fyrir húðina og eyða áhrifum akrýlatanna er nauðsynlegt að láta hann harðna undir útfjólubláu ljósi. Mariyah Traasdahl segir naglafræðinga eiga aðeins að nota lampa, með útfjólubláu ljósi, sem prófaðir hafi verið á rannsóknarstofum og þannig tryggt að áhrifin skili sér, annars sé hætta á að vökvinn harðni ekki nægilega vel og það auki líkurnar á ofnæmisviðbrögðum.

Rebecca Søgaard varar við því að komi upp ofnæmisviðbrögð við akrýlötum geti ofnæmið varað út ævina. Einkennin geti verið roði, kláði, blöðrur og sár sem geti orðið stór og neglurnar geti dottið af.

Það sé ekki nóg að hætta bara að gera nokkuð við neglurnar til að losna við ofnæmið. Akrýlötin séu í fleiri vörum t.d. heyrnartólum og plástrum og þegar ofnæmið hafi myndast einu sinni geti lítið magn af akrýlötum dugað til að koma ofnæmisviðbrögðum aftur af stað.

Hún leggur áherslu á að allir geti fengið ofnæmi fyrir akrýlötum en áhrifin geti verið mismikil eftir einstaklingum og magnið sem þurfi til mismikið.

Ekki finnast upplýsingar í fljótu bragði um að sams konar áhyggjur hafi verið reifaðar hér á landi þegar kemur að gervineglum fyrir fermingarbörn. Hvort slíkar áhyggjur hafi einhvers staðar komið fram meðal heilbrigðisstarfsfólks, foreldra eða naglafræðinga er DV því ekki kunnugt um þegar þessi orð eru rituð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður