fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 17. apríl 2026 15:30

Grensásvegur 44-48 en kaffistofan á að vera í nr. 46. Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar segir ljóst að ný staðsetning Kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi henti ekki starfsemi samtakanna. Mikið hafi verið reynt til að finna hentugra húsnæði og þessi ráðstöfun sé tímabundin þar til varanlegri lausn á húsnæðismálum Kaffistofunnar verði fundin. Íbúar og eigendur fyrirtækja í nágrenni húsnæðisins á Grensásvegi hafa andmælt mjög áformunum um að færa starfsemi Kaffistofunnar þangað.

Andmælin voru meðal annars reifuð á íbúafundi sem um 200 manns sóttu. Íbúar og eigendur fyrirtækja á svæðinu hafa til að mynda bent á að húsnæðið, sem er á Grensásvegi 46, sé skammt frá tveimur grunnskólum. Þeir óttast einnig til dæmis ónæði, sóðaskap, vímuefnaneyslu og afbrot af hálfu notenda kaffistofunnar.

Forsvarsmenn Samhjálpar og fleiri aðilar hafa á móti viljað meina að of mikið sé gert úr þeim vandamálum sem stafi af notendum Kaffistofunnar. Uppistaðan í hópnum sé ekki fólk í óreglu eins og haldið sé fram og passað verði upp á að umgengni í kringum nýja húsnæðið verði í lagi og að óhóflegt ónæði hljótist ekki af gestum Kaffistofunnar.

Flutningar Kaffistofunnar á Grensásveg hafa staðið til síðan á síðasta ári en hafa dregist meðal annars vegna áðurnefndra andmæla og þess að ráðist var í grenndarkynnningu og framkvæmdir við að breyta húsnæðinu, til að hægt sé að nýta það fyrir Kaffistofuna, voru stöðvaðar á meðan. Umhverfis- og skiðulagsráð Reykjavíkur samþykkti hins vegar undir lok síðasta mánaðar að haldið verði áfram með flutningana.

Halda því til streitu að Samhjálp fari á Grensásveg – „Í okkar samfélagi geta komið upp erfið atvik“

Samtal

Kaffistofan hefur verið í tímabundnu húsnæði hjá Fíladelfíu-kirkjunni í Hátúni en það er að sögn ekki möguleiki á að hún geti verið þar varanlega.

Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn hafa lagt fram tillögur sem ganga út á að fundið verði annað húsnæði en Grensásvegur 46 til að hýsa Kaffistofuna.

Á fundi borgarráðs í gær var tekin fyir tillaga Einar Þorsteinssonar fulltrúa Framsóknarflokksins um að Reykjavíkurborg hefji samtal við Samhjálp um staðsetningu kaffistofu Samhjálpar sem miði að því að aðstoða Samhjálp við að finna annað húsnæði fyrir kaffistofuna á hentugri stað. Einnig lagði Einar til að borgin skoði sérstaklega eignasafn sitt og meti hvaða fasteignir í eigu borgarinnar geti hentað undir starfsemina, auk þess að eiga samtal við ríkið um mögulegar eignir í borgarlandinu sem nýta mætti í sama tilgangi.

Hentar ekki

Í umsögn velferðarsviðs borgarinnar, sem undirrituð er af sviðsstjóranum Rannveigu Einarsdóttur, um tillögu Einars segir meðal annars að um miðjan september 2025 hafi verið haldinn fundur þar sem Samhjálp hafi óskað eftir tengingu milli Samhjálpar, byggingarfulltrúa borgarinnar og Heilbrigðiseftirlitsins. Hafi Samhjálp þá verið búin að taka á leigu húsnæðið að Grensásvegi 46 til þriggja ára. Húsnæðið að Grensásvegi hafi reynst háð flokki leyfa sem kallað hafi á grenndarkynningu, m.a. vegna breytinga á notkun rýmisins og sérstöðu starfseminnar.

Rannveig segir leyfisferlið hafa reynst umfangsmikið og tekið lengri tíma en áætlað var, meðal annars vegna kröfu um grenndarkynningu samkvæmt skipulagsreglugerð,  samþykkis eigenda fjöleignarhússins, sem nýja húsnæðið er hluti af, þar sem starfsemin hefði áhrif á sameign og ábendinga um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir sem síðan hafi verið stöðvaðar með formlegu bréfi í desember 2025.

Enn fremur segir í umsögninni að af hálfu velferðarþjónustu borgarinnar hafi komið skýrt fram að notendur þjónustu Kaffistofunnar þurfi staðsetningu miðsvæðis í borginni, nálægt neyðarskýlum og almenningssamgöngum. Staðsetning á Grensásvegi sé fjarri helstu viðkomustöðum notenda og leiði til færri heimsókna á Kaffistofuna. Reykjavíkurborg hafi unnið að því í samstarfi við Samhjálp að finna viðeigandi húsnæði, en ýmsar skipulagslegar, félagslegar og tæknilegar áskoranir hafi tafið ferlið.

Framtíðarlausn

Rannveig leggur áherslu á að reynt hafi verið í samvinnu við Samhjálp að finna hentugra húsnæði en án árangurs. Hún segir brýnt að finna varanlega og miðlæga lausn á húsnæðismálum Kaffistofunnar sem þjóni notendum vel. Tryggja þurfi um leið gagnsæi og öflugt samráð við íbúa, í nágrenninu, frá upphafi og samhæfa ákvarðanir um framtíðarhúsnæði Kaffistofunnar við þjónustuþarfir neyðarskýla og annarra úrræða í borginni.

Segir að lokum í umsögn Rannveigar:

„Húsnæðið að Grensásvegi er tímabundið húsnæði og því enn verið að leita að varanlegri lausn fyrir Kaffistofu Samhjálpar. Starfsfólk Samhjálpar hefur óskað eftir að Reykjavíkurborg flýti afgreiðslu leyfa til uppbyggingar nýs húsnæðis fyrir starfsemina í Hátúni og verður því áfram samstarf á milli Samhjálpar, velferðarsviðs og umhverfis- og skipulagssviðs.“

Með vísan til umsagnarinnar vísaði meirihluti borgarráðs tillögu Einars frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað
Fréttir
Í gær

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Í gær

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Í gær

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Í gær

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara