Ákveddu þig hvert þú ætlar þér og hvernig þú kýst að nýta vitsmuni þína og tíma. Þú virðist vita hvert þú ætlar þér í lífinu og hvernig markmiðum skal náð og ekki síst hvar tækifærin liggja. Metnaður, drifkraftur sem sjaldan sést, og sá eiginleiki og vilji til að ganga ófarinn veg býr greinilega innra með þér.
Vandinn er að þú nýtir ekki hæfileika þína rétt og hér er verið að benda þér á að leysa þann vanda.
Ef þú hefur það á tilfinningunni að þú hefur ekkert val ættir þú að bíða átekta og setja þér heldur fyrir sjónir það sem þú vilt með réttu.
Vertu varkár ef þú ákveður að láta vagninn ekki framhjá þér fara því ef þú setur þér eitthvað fyrir sjónir í fljótræði og gerir það af sannfæringu, jafnvel þó þú sért ekki viss um að þú viljir það, mun það taka á sig mynd.
Þroskaðu með þér meðvitund um dýpt máttarins sem í þér býr svo engin sköpun geti orðið í lífi þínu án þess að þú hafir sjálf/ur valið hana.
Mannlegi þátturinn á það til að standa í veginum og er þér ráðlagt að gefa eftir ef vandamál koma upp milli þín og þeirra sem umgangast þig í starfi sem og persónulega. Þú ert fær um að takast á við framtíðina ef þú agar sjálfið með jákvæðu hugarfari og jafnvægi. Kjarkur einkennir þig.