fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 17. apríl 2026 09:00

Landsréttur. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalmeðferð fyrir Landsrétti í Gufunesmálinu hefur staðið yfir frá því á miðvikudag og lýkur í dag. Í gær, fimmtudag, flutti  Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Krafðist hann ýmist þyngri dóma eða sömu dóma og féllu í héraðsdómi í málinu.

Eins og flestir vita varðar málið hrottalegt morð þriggja ungra manna á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, 65 ára manni frá Þorlákshöfn, þann 11. mars árið 2025. Hjörleifur lést eftir mikla misþyrmingar.

Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson hlutu báðir 17 ára fangelsi fyrir sinn hlut í málinu í héraðsdómi. Saksóknarinn krefst þess að þeir dómar verði óbreyttir. Hann fer hins vegar fram á að dómur yfir Matthíasi Birni Erlingssyni, sem fékk 14 ára dóm í héraði, verði þyngdur upp í 16 ára fangelsi.

Sjá einnig: Dómur fallinn í Gufunesmálinu – Þrír fá þunga refsingu

Matthías hefur staðfastlega neitað því að hafa beitt Hjörleif ofbeldi þó að hann hafi verið á vettvangi þar sem voðaverkið var framið. Í ákæru málsins eru ólíkt hinum tveimur aðalsakborningunum engar lýsingar á beinu ofbeldi Matthíasar í garð Hjörleifs. Í vitnaleiðslum í Landsrétti á miðvikudag hélt Lúkas Geir því hins vegar fram að Matthías hefði barið Hjörleif með tjakki sem hann hafði meðferðis í bíl sínum.

Matthías hafnaði í vitnaleiðslum í gær þessum fullyrðingum Lúkasar en engin lífsýni fundust á umræddum bíltjakki. Matthas tjáði dómnum að hann hefði ekki beitt tjakknum en tjakkur hafi verið í bílnum vegna þess að tveim dögum áður hafi hann skipt um dekk.

Vill að stúlkan fái refsingu

Stúlka, sem ákærð var fyrir hlutdeild í ráni og frelsissviptingu með því að setja sig í samband við Hjörleif heitinn og vísa honum út í bíl til Stefáns og Lúkasar, fyrir utan heimili hans í Þorlákshöfn, var sýknuð í héraðsdómi. Saksóknari fer fram á að Landsréttur sakfelli stúlkuna og dæmi hana til refsingar, enda hafi henni mátt vera ljóst hvað var í vændum.

Ungur maður fékk í héraðsdómi tveggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir að taka við fjármunum af reikningi Hjörleifs og senda áfram. Saksóknari fer fram á að sá dómur standi.

Landsréttur mun kveða upp sinn dóm í málinu eftir um það bil fjórar vikur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“