fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 17. apríl 2026 16:30

Landsréttur. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalmeðferð Gufunesmálsins fyrir Landsrétti er nú á lokametrunum en búast má við því að Landsréttur kveði upp dóm í málinu eftir rúmlega fjórar vikur.

Verjendur sakborninganna fluttu mál sitt í dag og krefjast þeir lægri refsinga fyrir skjólstæðinga sína. Stefán Blackburn var dæmdur í 17 ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í fyrra fyrir sinn hlut í málinu. Verjandi hans, Páll Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, segir að Stefán hafi ekki haft ásetning um morð er hann beitti Hjörleif heitinn ofbeldi heldur hafi ásetningurinn verið auðgun, en enda reyndu þremenningarnir að hafa fé af Hjörleifi vegna þess að hann hafi viljað fara til fundar við 17 ára stúlku.

Sjá einnig: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Einnig segir lögmaðurinn að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi, hvorki iðnaðarbil á Kjalarnesi né Tesla bíll sem komu við sögu í brotinu hafi verið rannsökuð með fullnægjandi hætti og skorti á myndbandsupptökur. Sakborningurinn Lúkas Geir Ingvarson hefur játað að hafa veitt Hjörleifi um tíu þung högg. Lögmaðurinn benti á að Stefán gæti ekki borið ábyrgð á því ofbeldi sem Lúkas beitti Hjörleif.

Segir Lúkas hafa verið heiðarlegan og einlægan

Hæstaréttarlögmaðurinn Stefán Kristjánsson er verjandi Lúkasar Geirs, sem einnig hlaut 17 ára fangelsisdóm í héraðsdómi fyrir sinn hlut í málinu. Stefán telur að Lúkas hafi gengist við því af heiðarleika að upplýsa um atvik málsins og þar með axlað ábyrgð. Hann hafi verið einlægur í afsökunarbeiðni sinni til aðstandenda Hjörleif. En hann hafi ekki ætlað að drepa neinn, dómurinn sé því allt of þungur.

Telur sök Matthíasar ósannaða

Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður er verjandi Matthíasar Björns Erlingssonar sem hlaut 14 ára fangelsi í héraðsdómi fyrir sinn hlut í málinu. Saksóknari fyrir Landsrétti hefur krafist 16 ára dóms yfir Matthíasi.

Matthías hefur staðfastlega neitað því að hafa beitt Hjörleif ofbeldi þó að hann hafi verið á vettvangi þar sem voðaverkið var framið. Í ákæru málsins eru, ólíkt hinum tveimur aðalsakborningunum, engar lýsingar á beinu ofbeldi Matthíasar í garð Hjörleifs. Í vitnaleiðslum í Landsrétti á miðvikudag hélt Lúkas Geir því hins vegar fram að Matthías hefði barið Hjörleif með tjakki sem hann hafði meðferðis í bíl sínum. Því neitaði Matthías staðfastlega en ekki hafa fundist lífsýni á tjakknum.

Sævar sagði í Landsrétti að það væri fjarstæðukennt að Matthías sé dæmdur í 14 ára fangelsi, hvað þá 16 ára, eins og saksóknari krefst. Matthías hafi ávallt neitað sök, hafi ekki komið að skipulagningu brotsins, engin gögn í málinu sanni aðild hans að ofbeldi og engin lífsýni eða önnur gögn sanni að hann hafi beitt ofbeldi. Meðákærðu hafi hins vegar viðurkennt ofbeldi, þar á meðal Lúkas, sem viðurkennir spörk sem stemma við áverka brotaþola, sem hafi valdið dauða hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað
Fréttir
Í gær

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Í gær

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Í gær

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Í gær

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara