

Um var að ræða fimm stúlkur og þrjá drengi.
Árásarmaðurinn, Shamar Elkins, var faðir sjö barnanna. Hann framdi voðaverkið eftir rifrildi við eiginkonu sína snemma um morguninn.
Stjúpfaðir hans, Marcus Jackson, rifjar upp í samtali við bandaríska fjölmiðla að Elkins hafi hringt í hann í örvæntingu um páskana og sagt sig vera að „drukkna í myrkum hugsunum“.
Samkvæmt New York Times hafði hann þá einnig rætt við móður sína og lýst því að hann vildi binda enda á líf sitt. Þá sagði hann að eiginkona hans, Shaneiqua Pugh, hygðist sækja um skilnað.
„Ég sagði við hann að hann gæti sigrast á þessu. Mér er sama hvað þú ert að ganga í gegnum, þú getur komist í gegnum það,“ sagði Jackson við blaðið. „Svo man ég að hann sagði: „Sumir snúa aldrei aftur frá sínum djöflum.’“
Elkins var síðar skotinn til bana af lögreglu eftir árásina.
Móðir hans, Mahelia Elkins, sagðist ekki hafa verið viss um hvaða vandamál sonur hennar og eiginkona hans, sem giftust árið 2024, voru að glíma við. Ættingi Pugh segir hins vegar að þau hafi verið í skilnaðarferli og átt að mæta fyrir dóm í dag.
Elkins skaut eiginkonu sína, sem lifði árásina af en er alvarlega slösuð á sjúkrahúsi. Þá skaut hann aðra konu á öðru heimili skammt frá, sem talin er hafa verið kærasta hans.
Hann átti fjögur barnanna með eiginkonu sinni og þrjú með hinni konunni.
Elkins starfaði sem sendill hjá UPS. Fyrrverandi samstarfsmaður lýsti honum sem umhyggjusömum föður, en sagði hann oft hafa virst stressaðan og hafa haft þá áráttu að reyta hár sitt þannig að mynduðust skallablettir.
Hann hafði áður hlotið dóma, meðal annars fyrir ölvunarakstur árið 2016 og vopnalagabrot árið 2019.
Fórnarlömbin hafa verið nafngreind sem Jayla Elkins, 3 ára; Shayla Elkins, 5 ára; Kayla Pugh, 6 ára; Layla Pugh, 7 ára; Markaydon Pugh, 10 ára; Sariahh Snow, 11 ára; Khedarrion Snow, 6 ára; og Braylon Snow, 5 ára. Sjö þeirra voru börn hans en eitt var frændbarn þeirra.
Flest barnanna voru skotin í höfuðið meðan þau sváfu, að sögn talsmanns lögreglunnar í Shreveport, Christopher Bordelon, í samtali við NBC News.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.