fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

433
Mánudaginn 20. apríl 2026 08:30

Jack Parkinson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöld yfir fyrrum knattspyrnumanninum Jack Parkinson eru hafin í London. Hann sakaður um að hafa misnotað stöðu sína sem þjálfari til að beita drengi kynferðisofbeldi.

Parkinson, sem lék á sínum tíma með félögum á borð við Welling United, Woking, Maidstone United og Dover Athletic, er sakaður um að hafa brotið gegn fjórum drengjum á árunum 2010 til 2019 á meðan hann starfaði sem þjálfari.

Saksóknari málsins segir hann hafa notað hlutverk sitt til að komast í nánd við fórnarlömbin og beitt ýmsum aðferðum til að brjóta á þeim, meðal annars með því að bregða sér í hlutverk sjúkraþjálfara þeirra.

Parkinson neitar öllum ásökunum, sem innihalda nauðgun og kynferðisbrot.

Málið var tekið upp að nýju eftir að einn kærandi leitaði til lögreglu árið 2019, en áður hafði rannsókn átt sér stað án þess að hún leiddi til ákæru.

Réttarhöldin standa yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar