fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. apríl 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndskeið sem var nýlega birt opinberlega sýnir hetjulega framgöngu skólastjóra við Pauls Valley-menntaskólann í Oklahoma í Bandaríkjunum þegar hann hljóp í átt að skothríð og yfirbugaði vopnaðan fyrrverandi nemanda sem hafði ætlað sér að fremja skotárás í skólanum.

Samkvæmt dómskjölum sem sjónvarpsstöðin KFOR hefur undir höndum gekk Victor Lee Hawkins, 20 ára fyrrverandi nemandi, inn í skólann þann 7. apríl síðastliðinn með tvær hlaðnar hálfsjálfvirkar skammbyssur.

Hann skipaði fólki að leggjast á gólfið og reyndi að skjóta nemanda, en árásin mistókst þegar byssan sem hann ætlaði að nota stóð á sér. Í kjölfarið skaut hann að öðrum nemanda en hitti ekki.

Þegar nemendur tóku til fótanna hljóp skólastjórinn, Kirk Moore, í átt að skothríðinni. Hann ruddist inn í anddyri skólans og stökk á Hawkins, náði skammbyssu úr hendi hans og hélt honum niðri þar til aðstoðarskólastjórinn kom til hjálpar. Saman héldu þeir árásarmanninum niðri þar til lögregla mætti á vettvang.

Moore, sem er sextugur, hlaut skotsár á hægri fótlegg í átökunum. Hann hefur síðan verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er á batavegi.

Hawkins mun hafa sagt lögreglu að hann hefði stolið byssum föður síns og ekið bíl hans að skólanum. Hann sagðist hafa viljað framkvæma „sína eigin skotárás í skóla í anda Columbine“ og að Moore hefði verið sérstakt skotmark þar sem honum hefði ekki líkað við hann.

Columbine-skotárásin er ein alræmdasta skotárásin í sögu Bandaríkjanna, en hún átti sér stað í apríl 1999 þegar tveir nemendur skutu 14 manns til bana í samnefndum skóla.

Lögreglustjórinn í Pauls Valley, Don May, segir við NBC News að skjót viðbrögð Moore hafi komið í veg fyrir stórfelldan harmleik.

„Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna,“ sagði May.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“
Fréttir
Í gær

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts