fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Laun formanns VR hækkuð verulega

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 17. apríl 2026 22:04

Halla Gunnarsdóttir formaður VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn VR samþykkti á stjórnarfundi á miðvikudag að hækka laun formannsins, Höllu Gunnarsdóttur, um á bilinu 5-600 þúsund krónur. 13 af 15 stjórnamönnum samþykktu hækkunina, einn sat hjá og einn greiddi atkvæði á móti.

Laun Höllu eru eftir hækkunina 1.913.000 kr. á mánuði.

DV fékk ábendingu um þessa ákvörðun en fundargerð fundarins hefur ekki verið birt á vef VR. Var freistað þess að fá ábendinguna staðfesta hjá þeim stjórnarmönnum sem greiddu ekki atkvæði með tillögunni. Annar þeirra er Bjarni Þór Sigurðsson, sem sat hjá. Staðfesti hann hjásetuna í samtali við DV en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Jónas Yngvi Ásgrímsson greiddi atkvæði gegn hækkuninni. Hann viðurkennir þó í samtali við DV hækkunin sé ekki röklaus en hún á sér stoð í þeim veruleika að Halla gegnir embætti varaforseta ASÍ, en þiggur ekki laun fyrir heldur renna þau laun inn í VR, að sögn, Jónasar. Þiggur Halla eingöngu laun frá VR.

En hvers vegna var Jónas þá andsnúinn hækkuninni?

„Mér fannst þetta ekki tímabært, mér fannst þetta ekki rétti tímapunkturinn fyrir þessa breytingu,“ sagði hann og vísar þar til viðkvæms efnahagsástands í landinu.

Uppfært – athugasemd: Meirihluti hækkunarinnar er tilfærsla á launum Höllu sem varaforseti ASÍ og stjórnarmaður í LÍV. Þau laun renna núna inn í VR og Halla þiggur laun sín eingöngu frá VR. Launahækkunin er 188.936 kr. Sjá nánar: 

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir