fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. apríl 2026 13:30

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi menntamálaráðherra gagnrýnir harðlega viðbrögð Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar, vegna uppsagnar Kristjáns Ásmundssonar skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Kristján ákvað að segja starfi sínu lausu eftir fund með starfsfólki mennta- og barnamálaráðuneytisins þar sem, að hans sögn, fengust fá svör við því hvenær yrði ráðist í stækkun skólans, sem ákveðin var í tíð síðustu ríkisstjórnar. Ráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem tímasetningar á framkvæmdunum voru gefnar upp en Ásthildur Lóa fullyrðir að hún sjálf hafi upplýst Halldóru Fríðu og aðra bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar um þessar tímasetningar í síðasta mánuði. Ástæða uppsagnar Kristjáns hljóti að vera önnur.

Fjallað hefur verið töluvert um uppsögn Kristjáns og það uppnám sem hún skapaði meðal starfsfólks og nemenda skólans og sveitarstjórnarfólks á Suðurnesjum:

Ráðuneytið bregst við uppnáminu á Suðurnesjum – Skólameistarinn hættur og nemendur gengu út

Fyrri hluta dags í gær var tilkynnt um um uppsögn Kristjáns á Facebook-síðu skólans en þar kom fram að dræm viðbrögð ráðuneytisins við spurningum hans um hvenær framkvæmdir við stækkun skólans, sem mun fela í sér uppbyggingu nýrrar verknámsaðstöðu og ákveðið var að ráðast í fyrir tveimur árum, hæfust, hefðu gert það að verkum að Kristján hafi fengið nóg af áhugaleysi stjórnvalda á málefnum skólans.

Kristján hefur starfað við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í 40 ár og þar af í samtals 17 ár sem skólameistari en fyrstu þrjú árin, af þessum 17, leysti hann þáverandi skólameistara af.

Fullur mælir

Meðal þeirra sem brugðust harkalega við var áðurnefnd Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar. Sagði hún í harðorðri Facebook-færslu mælinn fullan og sagði ljóst að stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja væri komin á ís. Sakaði hún stjórnvöld um að draga lappirnar og fór fram á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir

Síðdegis í gær sendi mennta- og barnamálaráðuneytið frá sér fréttatilkynningu. Þar kom fram að reiknað væri með að framkvæmdir við nýju verknámsaðstöðuna hæfust í byrjun næsta árs og kennsla hæfist þar haustið 2028.

Í viðtölum við fjölmiðla í gærkvöldi sagði Kristján að einnig væri þörf á að bæta aðstöðuna fyrir bóknám í skólanum. Það kom ekki fram að hann myndi draga uppsögn sína til baka í ljósi tilkynningar ráðuneytisins en hann virtist ekki útiloka það. Skipunartími Kristjáns átti að renna út á næsta ári en hann á skammt eftir í eftirlaunaaldurinn.

Hvað var sagt

Ásthildur Lóa snýst til varnar ríkisstjórninni og ráðuneytinu í Facebook-færslu.

Hún segir málflutning Halldóru Fríðu engum til framdráttar og segist sjálf hafa upplýst hana um tímasetingar framkvæmdanna:

„Stækkun Fjölbrautarskóla Suðurnesja er EKKI „komin á ís“. Húsnæðisvandi Fjölbrautarskóla Suðurnesja er ekki nýr af nálinni. Hann er uppsafnaður frá mörgum fyrri árum og er mjög gott dæmi um þá  innviðaskuld sem þjóðfélagið/ný ríkisstjórn stendur frammi fyrir, alveg sama hvert litið er. Staðreyndin er sú að framkvæmdir munu hefjast við nýtt verknámshús FS í janúar á næsta ári og þeim á að ljúka um mitt ár 2028. Þetta var bæjarstjórn Reykjanesbæjar upplýst um af mér og Sigurði Helga Pálmasyni (þingmanni Flokks fólksins), á fundi hennar með þingmönnum kjördæmisins þann 24. mars sl. Þessar upplýsingar lágu fyrir þegar Kristján sagði upp þannig að ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn.“

Í athugasemdum við færslu Halldóru Fríðu er Ásthildur Lóa þó ekki eins viss með hvaða tímasetningar hún gaf upp á umræddum fundi í mars en þar segir hún að miðað við tilkynningu ráðuneytisins hafi framkvæmdum verið flýtt frá því sem áður var og það sé gott mál. Miðað við þau orð virðist hún ekki hafa gefið upp nákvæmlega sömu tímsetningar á fundinum í mars og gefnar voru upp í tilkynningu ráðuneytisins í gær.

Ásthildur Lóa segir ekki með beinum hætti að Kristján sé að halla réttu máli um hvað fram fór á fundi hans með starfsfólki mennta- og barnamálaráðuneytisins og færir ekki rök fyrir því að ástæða sé til að bera brigður á orð hans.

Hvers vegna starfsfólk ráðuneytisins hefur ekki gefið Kristjáni nákvæm svör um hvenær framkvæmdir hæfust eftir að fyrrum ráðherra málaflokksins hafði gefið upp tímasetningar á fundi þingmanna Suðurkjördæmis með bæjarstjórn Reykjanesbæjar er því ekki fyllilega ljóst.

Nóg

Halda ber því til haga að í færslunni lofar Ásthildur Lóa störf Kristjáns sem skólameistari en vill meina að óánægja hans beinist ekki að núverandi ríkisstjórn heldur aðgerðaleysi fyrri ríkisstjórna í málefnum skólans:

„Svo virðist sem hann hafi fengið nóg af innihaldslausum loforðum stjórnvalda og það er hreint ekki skrýtið að hann hafi misst trúna á framkvæmdir, eftir svikin loforð síðustu ríkisstjórnar, þó að nú fyrst glitti í efndir.“

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, sem setið hafi við völd í eitt og hálft ár, beri hins vegar ekki ábyrgð á aðstöðuleysi skólans en sá að axla sína ábyrgð:

„Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ber enga ábyrgð á því hversu stór vandinn er orðin, en hún ber vissulega ábyrgð á að bregðast við honum og nákvæmlega ÞAÐ er hún að gera.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað

Gufunesmálið í Landsrétti: Saksóknari vill að stúlkunni verði refsað
Fréttir
Í gær

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Í gær

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Í gær

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Í gær

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara