

„Mín skoðun eftir að hafa flutt í borgina úr sveitinni að miðbær Reykjavíkur sé ónýtur, dauður,” sagði Bubbi í færslu sinni.
„Hvað gerðist? Hverjum datt í hug að hrekja nánast alla verslun úr miðborginni? Vart finnanleg bílastæði, jú það má finna túrista en heimamenn sjást varla. Einu sinni var miðbærinn fullur af fólki, verslun og lífi. Ég er búinn að búa á Seltjarnarnesi í 5 ár og fer daglega um borgina. Mín skoðun er sú það er búið að eyðileggja miðbæinn.“
Eins og við var að búast mynduðust fjörugar umræður undir færslunni og tóku margir undir með Bubba á meðan aðrir voru honum hjartanlega ósammála, þar á meðal nokkrir nafntogaðir einstaklingar.
„Ég hef búið í miðbænum í 38 ár. Þar áður átti ég daglega leið um miðbæinn. Mín skoðun er sú að það hafi aldrei – segi og skrifa ALDREI verið jafn mikið líf í miðbænum og einmitt nú, og það eru alls ekki eingöngu túristar. Þetta segi ég ekki af einhverri pólitík, heldur er þetta bara mitt einlægt álit. Ég hef aftur á móti sjaldan séð þig í miðbænum,“ segir til dæmis fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson.
Edda Björgvinsdóttir leikkona tekur einnig undir með Illuga. „Nákvæmlega!!! Í áratugi hef ég fylgst með því hvernig miðborgin verður fegurri og líflegri með hverju árinu. Þegar ég var að fara rúntinn í gamla daga var ekki kjaftur á ferli og mengandi bílar áttu Laugaveginn. Og kæri Bubbi bílastæðin voru miklu miklu færri. Í dag notum við bílastæðahúsin og njótum þess að geta gengið um göturnar.“
Fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir tekur einnig undir með Illuga og nefnir dæmi.
„Til dæmis á föstudag var allt krökkt af fólki á Óðinstorgi, allt Íslendingar- Laugavegurinn er iðandi af lífi þar sem göngugatan er, hér er allt til alls – bara í 100 metra radíus frá mér eru 3 bakarí, fjöldi kaffihúsa, íslenskar hönnunarvörubúðir, búsáhaldabúð, fataverslanir, nytjamarkaðir, veitingastaðir og ef ég fer í 350 metra þá bætast við matvöruverslanir, sundlaug og enn fleiri bakarí, kaffihús, veitingastaðir, verslanir og ég veit ekki hvað og hvað. Miðborgin okkar er æði!“
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er einnig ósammála Bubba. „Ég bý í miðbænum, á Tjarnarbakkanum, hann hefur aldrei verið kraftmeiri og lífvænlegri.“
Felix Bergsson, leikari og fjölmiðlamaður, er það líka. „Vá hvað ég er ósammála þér Bubbi vinur minn,“ segir hann og svarar Bubbi athugasemd hans svona: „Held að fólk sem búi þar í göngufæri séu glaðir með bæinn en fólk sem þarf að koma þangað utanað sé með aðra skoðun.“
En svo eru líka margir sem taka undir með Bubba, til dæmis Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni. „Það er synd að missa verslanir eins og Brynju, herrafataverslun Guðsteins og núna Húrra. Það eru komnir frábærir veitingastaðir en verslunin hefur tapast víða.“
Tónlistarmaðurinn Friðrik Karlsson tekur líka undir með honum: „Sammàla Bubbi èg hef varla farið í miðbæinn í 10 àr algjörlega búið að rústa honum!!!!!“
Aðrar athugasemdir eru í svipuðum dúr:
„Sammála, alveg ömurlegt hvað er búið að gera, enda nánast hætt að fara í miðbæinn.“
„Svo sammála þér Bubbi, svo sorglegt“
„Ein af ástæðunum fyrir því að ég flúði land. Það var dapurlegt að horfa upp á þessa fégráðugu þróun.“