

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík verður sveitarstjóraefni framboðs L-lista Framfara í Þingeyjarsveit í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði en hún hafði áður tilkynnt að hún myndi ekki sækjast eftir endurkjöri í Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningum frá bæði Þórdísi Lóu og L-listanum.
Í tilkynningu Þórdísar Lóu, sem verið hefur í borgarstjórn síðan 2018 og verið bæði formaður borgarráðs og forseti borgarstjórnar, kemur fram að L- listinn hafi leitað til hennar um að taka að sér starf sveitarstjóra í Þingeyjarsveit að loknum sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi og hún hafi ákveðið að gefa kost á mér í það verkefni.
Þórdís Lóa tekur fram að hún hafi töluverð tengsl við sveitina:
„Þingeyjarsveit er mér afar kær. Þar eru mínar rætur, þar á fjölskylda mín jörð og ættaróðal. Ég hef eytt þar nær öllum sumrum frá því ég man eftir mér og síðar einnig meira og meira af vetrum. Þar er ég skógarbóndi og hef starfað við ferðaþjónustu, meðal annars sem leiðsögumaður um hálendi sveitarfélagsins. Þingeyjarsveitin, náttúran og samfélagið hafa mótað mig meira en ég geri mér líklega grein fyrir og hjarta mitt hefur lengi slegið fyrir sveitina mína.“
„Ég kem inn í þetta verkefni af auðmýkt en líka miklum metnaði og áhuga. Og ég segi bara eins og er: Hver vill ekki verða Þingeyingur? Framundan eru spennandi tímar og ég hlakka til samtals við ykkur um framtíðina.“
Auk L-listans Framfara fyrir Þingeyjarsveit eru tveir aðrir listar sem bjóða fram í sveitarfélaginu, N-listinn og Á-listi Ábyrgðar.
Í tilkynningu L-listans segir að Þórdís Lóa sé kynnt sem sveitarstjóraefni framboðsins með stolti:
„Eða „Lóu í Víðum“ eins og hún er betur þekkt hér í sveit. Við fögnum því að Lóa hafi samþykkt að gefa kost á sér í þetta mikilvæga verkefni.“
„Þórdís Lóa þekkir Þingeyjarsveit afar vel. Rætur hennar liggja í sveitarfélaginu, þar sem hún er frá Víðum í Reykjadal. Hana hlakkar nú til að flytja heim. Þekking hennar á svæðinu, fólkinu og þeim tækifærum sem þar felast er því bæði djúp og raunveruleg.“
Skipt hefur verið tvisvar um sveitarstjóra á þessu kjörtímabili í Þingeyjarsveit. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir tók við starfinu í mars 2023 af Jóni Hróa Finnssyni. Ragnheiði var sagt upp störfum í september á síðasta ári og tók þá Gerður Sigtryggsdóttir, oddviti E-listans í sveitarstjórn, við starfinu.
Segir að lokum í tilkynningu L-listans:
„Við teljum Þórdísi Lóu vera rétta leiðtogann til að leiða það verkefni. Framundan eru spennandi tímar og við hlökkum til að eiga samtal við íbúa um framtíðina og þau fjölmörgu tækifæri sem framundan eru.“