fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 20:30

Sumir þurfa að reiða fram háa tryggingu áður en farið er til Bandaríkjanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur orðið mjög dýrt fyrir suma að fara til Bandaríkjanna í nánustu framtíð. Samkvæmt nýjum bandarískum reglum þurfa ákveðnir ferðamenn og fólk í viðskiptaferðum að greiða háa tryggingu fyrir að fá að koma inn í landið.

Þetta eru 15.000 dollarar, sem svarar til um 1,8 milljóna íslenskra króna, að sögn CHIP sem segir að um tilraunaverkefni sé að ræða.

Reglurnar gilda um fólk frá ákveðnum löndum en reiknað er með að þeim verði síðan fjölgað þegar fram líður. Meðal þeirra landa sem nú þegar eru á listanum eru Túnis, Eþíópía, Georgía og Mongólía.

Markmiðið með að láta fólk greiða þessa tryggingu er að koma í veg fyrir að það dvelji lengur í landinu en það hefur heimild til því það er dýrt fyrir hið opinbera að þurfa að hafa uppi á fólki og senda úr landi.

Ef fólk fylgir reglunum og fer úr landi áður en dvalarleyfi þess rennur út, þá fær það upphæðina endurgreidda.

Yfirvöld segja að verkefnið hafi nú þegar haft þau áhrif sem vænst var því færri stoppi í landinu, eftir að dvalarleyfi þeirra rennur út, en áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið