
Tvær konur á þrítugsaldri hafa verið handteknar í Svíþjóð vegna gruns um að þær hafi aðstoðað 12 ára gamlan dreng við að fremja morð.
Fram kemur í umfjöllun Aftonbladet að drengurinn sé grunaður um að hafa myrt karlmann á þrítugsaldri í hverfinu Oxie, sem er í norðurhluta Malmö, 12. desember síðastliðinn.
Hvernig aðkoma kvennanna, sem eru báðar 24 ára, að morðinu nákvæmlega var hefur ekki verið upplýst. Saksóknari segir aðstoð við morðingja geta falist í ýmsu. Til að mynda að útvega síma eða flutning frá vettvangi glæpisins.
Drengurinn er grunaður um að hafa skotið hinn látna á meðan hann sat í bíl en fleiri munu hafa verið í bílnum og lifðu þeir af. Talið er mögulegt að þeir hafi allir verið skotmörk drengsins.
Konurnar og drengurinn hafa verið yfirheyrð og símar þeirra rannsakaðir auk myndefnis úr myndavélum í nágrenni morðvettvangsins. Til rannsóknar er hvort fleiri en þau þrjú hafi komið að morðinu.
Önnur konan er ekki á sakaskrá en hin var eitt sinn grunuð um vopnalagabrot.
Grunur leikur á að drengurinn hafi tengsl við Foxtrot glæpasamtökin og að þau hafi fengið hann til að fremja ódæðið. Hann er sá yngsti í sögu Svíþjóðar sem grunaður hefur verið um að fremja morð með skotvopni. Drengurinn hafði áður verið undir smásjá barnaverndaryfirvalda einkum vegna ofbeldis, vímuefnanotkunar og afbrota á heimili hans og vegna þess að hann þótti vera í slæmum félagsskap.