fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Hitinn í svefnherberginu getur haft áhrif á heilsufar þitt

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 18:00

Það getur verið mjög óþægilegt að svitna í svefni. Mynd/OpenArtAI

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki alltaf lengd svefnsins sem ræður hvernig þér líður daginn eftir. Smáatriði í svefnherberginu geta leikið stærra hlutverk í þessu samhengi en flestir átta sig á.

Prevention segir að hitastigið í svefnherberginu geti haft áhrif á hvernig hjartað starfar á meðan þú sefur.

Þegar þú sefur, þá á líkaminn að hvílast og endurhlaða. Það hægist á púlsinum og líkaminn verður rólegri. En ef það er of heitt í herberginu, þá getur þetta ferli truflast.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu BMC Medicine, kemur fram að hár hiti að næturlagi valdi því að púlsinn sé hraður og sýni merki um líkamlegt stress.

Ástæðan er að hitinn hefur áhrif á þann hluta taugakerfisins sem stýrir hjartslættinum og blóðþrýstingnum.

Þegar hitinn er of hár, verður líkaminn að leggja meira á sig til að losna við hitann. Það getur dregið úr svefngæðunum og aukið álagið á blóðrásina.

Svalara umhverfi getur á hinn bóginn hjálpað líkamanum við að finna ró og stutt við stöðugri virkni hans að næturlagi.

Það er einnig mikilvægt að forðast öfgahitastig, hvort sem það er of mikill hiti eða kuldi, því það getur haft neikvæð áhrif á svefninn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Í gær

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan
Pressan
Í gær

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“
Pressan
Í gær

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hundruð heimila tekin yfir af glæpagengjum í Bretlandi í hverri viku

Hundruð heimila tekin yfir af glæpagengjum í Bretlandi í hverri viku