
Borin hafa verið kennsl á líkamsleifar sex ára drengs sem hvarf árið 2022, í Fort Worth í Texas.
Noel Rodriguez-Alvarez, 6 ára gamall, sást síðast á lífi í október árið 2022. Þó var ekki tilkynnt um hvarf hans fyrr en í mars árið 2023, í kjölfar þess að lögregla kannaði aðstæður á heimili hans (welfafe check). Var rannsóknarmönnum sagt að barnið, sem var seinfært og með meðfædda andlega fötlun, byggi hjá ættingjum sínum í Mexíkó. Daginn eftir þessa eftirlitsheimsókn fluttist fjöldskylda drengsins til Indlands og Noel litli var ekki með í för.
Á apríl árið 2023 var rannsókninni breytt úr mannshvarfsfmáli í morðrannsókn. Móðir drengsins, Cindy Rodriguez-Singh, 41 árs gömul, var ákærð fyrir morð og líkamsárás á barn, sem og fyrir að fara úr landi með þeim ásetningi að snúa ekki til baka.
Við rannsókn málsins komst lögregla að því að Rodriguez-Singh hefði beitt drenginn ofbeldi og talið að hann væri haldinn illum öndum. Einnig kom í ljós að hún hafði látið leggja nýja steinsteypu á stéttina fyrir utan heimili sitt, en leit þar að líkamsleifum drengsins hafði ekki skilað árangri.
Cindy Rodriguez-Singh var framseld frá Indlandi til Texas í ágúst árið 2025 þar sem henni var birt ákæra. Hins vegar var hún vegna heilsufars þá talin ófær um að sitja réttarhöld.
Cindy er enn á sjúkrahúsi en saksóknarar hyggjast draga hana fyrir dóm um leið og hún hefur heilsu til þess.
Phil Sorrell, saksóknari hjá héraðssaksóknaraembættinu í Tarrant-sýslu, Texas, segir að líf litla drengsins hafi skipt máli og hann hafi verðskuldað umhyggju og kærleika. Þess í stað hafi verið framinn gegn honum ólýsanlegur glæpur.
Sjá nánar um málið hér.