fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Pressan

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Pressan
Laugardaginn 16. maí 2026 20:20

Þinghús Bandaríkjanna. Mynd: Kevin McCoy - Wikimedia Commons - CC BY-SA 2.0

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjósendur Demókrataflokksins eru knúnir áfram af mikilli reiði sem repúblikanar eiga ekki neitt svar við. Þetta ætti að valda Donald Trump áhyggjum því útlitið er orðið ansi dökkt hvað varðar þingkosningarnar í nóvember.

Staða Trump var ekki góð fyrir því vinsældir hans hafa snarminnkað og Repúblikanaflokkurinn færist sífellt nær því að gjalda afhroð í kosningunum í nóvember.

Og nú berast þau tíðindi að bandarískir kosningasérfræðingar séu farnir að taka eftir áberandi mun á kjósendum flokkanna tveggja.

Það er auðvitað munur á hvorn flokkinn þeir kjósa. Þeir vinstrisinnuðu kjósa Demókrataflokkinn og þeir hægrisinnuðu Repúblikanaflokkinn.

En eitt það mest afgerandi, og það sem gleymist oft, er hversu mikill hvati kjósendanna er til að mæta á kjörstað til að kjósa.

Nú er hvati vinstrisinnaðra kjósenda miklu meiri en þeirra hægrisinnuðu og það er hættumerki fyrir Trump og Repúblikana og getur haft mikil áhrif á úrslitin í nóvember.

Í nýlegri könnun sem Ipsos gerði fyrir Washington Post og ABC News kemur fram að 73% kjósenda Demókrataflokksins telja að kosningarnar í nóvember séu mikilvægari en nokkrar aðrar kosningar. Hjá kjósendum Repúblikanaflokksins er hlutfallið 52%.

Með öðrum orðum þá eru Demókratar 21 prósentustigi líklegri til að mæta á kjörstað.

Aðrar skoðanakannanir hafa sýnt svipaða stöðu.

Þetta getur orðið afgerandi í kosningunum því úrslit kosninga í Bandaríkjunum ráðast sjaldnast af hvern fólk kýs. Þau ráðast af hvort fólk mæti á kjörstað og kjósi.

Kosningabaráttan snýst því ekki eingöngu um að sannfæra kjósendur um að skipta um flokk, heldur um að fá þá upp úr sófanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Í gær

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“

Hatur í garð ferðamanna á Tenerife – „Kill Tourists“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við

Flugfreyja varar alla sem nota sætisborðin við
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis

Svíar hyggjast fangelsa börn frá 13 ára aldri vegna gengjaofbeldis
Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“

Afhjúpa sterk viðbrögð Obama við Brexit: „Þið hafið f**** ykkur“