
Dómurinn yfir manninum, Joshua Cory Nealy, var kveðinn upp þann 7. maí síðastliðinn. Samkvæmt lögum í Oregon-ríki er lífstíðardómur án reynslulausnar sjálfgefin refsing fyrir einstakling sem hefur áður verið sakfelldur oftar en einu sinni fyrir tiltekin kynferðisbrot.
Nealy var dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar árið 2007 og fyrir blygðunarsemisbrot árið 2018. Samkvæmt gögnum dómstóla spannar sakaferill hans meira en tvo áratugi.
Þar á meðal játaði hann sök árið 2010 fyrir að hafa ekki tilkynnt sig sem skráðan kynferðisbrotamann, eins og lög gera ráð fyrir. Saksóknarar segja að hann hafi alls verið handtekinn 166 sinnum.
Lífstíðardómurinn tengist máli frá árinu 2023 í Washington-sýslu. Þar á Nealy að hafa afklæðst í mátunarklefa í fataverslun í Washington Square-verslunarmiðstöðinni og síðan berað sig fyrir starfsmanni verslunarinnar.
Samkvæmt saksóknara spurði hann starfsmanninn, konu, hvort hún vildi stunda kynlíf og bauð henni inn í mátunarklefann.
Konan kallaði eftir öryggisverði verslunarinnar. Þá á Nealy einnig að hafa berað sig fyrir öryggisverðinum áður en hann klæddi sig aftur og yfirgaf verslunina með sólgleraugu sem hann hafði stolið.
Verjendur Nealy héldu því fram að lífstíðarfangelsi væri ósanngjörn refsing í þessu tiltekna máli. Þeir sögðu hann hafa verið í andlegu ójafnvægi þegar hann framdi brotið og undir áhrifum fíkniefna. Þá sögðu þeir hann glíma við geðræn veikindi.