
Það var því ekki um annað að ræða en leggjast undir hnífinn en það var það síðasta sem hann gerði því læknirinn, sem sá um aðgerðina, gerði afdrifarík mistök því hann fjarlægði ekki miltað úr Bryan heldur lifrina. Bryan blæddi út á skurðarborðinu.
Bild segir að nú sé komið að því að læknirinn, Thomas Shaknovsky, þurfi að standa skil á gerðum sínum því ákæra hefur verið gefin út á hendur honum. Hann á allt að 15 ára fangelsi yfir höfði sér ef hann verður sakfelldur.
Bild segir að Shaknovsky hafi sagt að hann hafi ekki getað séð mun á lifrinni og miltanu því að miltað hafi verið „tvöfalt stærra en eðlilegt sé“.
Réttarmeinafræðingurinn, sem annaðist krufninguna á Bryan, vísar þessu á bug og segir að miltað hafi áberandi minna en lifrin.
Shaknovsky segir að dauði Bryan hafi verið „ótrúlega óheppilegur atburður“ sem hann harmi mjög.
En hann reyndi samt sem áður að leyna þessum „ótrúlega óheppilega atburði“ í skýrslu sinni um aðgerðina. Hann bað hjúkrunarfræðing að segja lifrina vera milta í skýrslunni. Sjálfur skrifaði hann í skýrsluna að hann hefði fjarlægt miltað.