
Pilturinn, Billy Stokoe, var á svokölluðum Sur-Ron-rafkrossara þegar hann ók á hana, en konan var að ganga yfir gangbraut þegar slysið varð.
Það var metið piltinum til refsiþyngingar að hann var undir áhrifum kannabisefna þegar slysið varð og þar að auki með athyglina á símanum sínum. Ekki bætti úr skák að hann flúði vettvang þegar hann áttaði sig á alvarleika málsins og var þar að auki ekki með ökuréttindi og ótryggður.
Við dómsuppkvaðningu í Newcastle kom fram að Stokoe hefði ekið með bilaða frambremsu og haldið á síma í vinstri hendi þegar slysið varð. Dómarinn sagði að símanotkunin hefði ekki verið „augnabliks truflun“ heldur staðið yfir nokkuð löngu áður en hann ók á konuna.
Myndbandsupptaka úr bíl, sem sýnd var fyrir dómi, sýndi þegar Stokoe keyrði á konuna á gangbrautinni áður en hann féll sjálfur af hjólinu. Í stað þess að hlúa strax að henni tók hann fyrst hjólið sitt upp úr götunni, ók að konunni áður en hann flúði af stað og faldi hjólið hjá vini sínum.
Á upptökunni sést Stephenson liggja hreyfingarlaus á götunni á meðan lítill hundur dóttur hennar hleypur í kringum hana í örvæntingu.
Dóttir hennar, Lisa Tench, lýsti í átakanlegri yfirlýsingu fyrir dómi því þegar hún kom á vettvang eftir að vinkona hennar hringdi í hana.
„Ég mun aldrei gleyma myndinni af móður minni liggjandi marin og illa útleikinni á veginum, með hægri fótinn nánast aflimaðan fyrir neðan hné,“ sagði hún.
„Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags. Hún reyndi svo mikið að anda. Ég bað hana að yfirgefa mig ekki.”
Reiði fjölskyldunnar jókst enn frekar þegar upplýst var fyrir dómi að Stokoe hefði aðeins tíu dögum eftir handtöku sína óskað eftir breytingu á ákvæðum skilorðs sem hann sætti svo hann gæti farið á þjóðarleikvang Englendinga í London, Wembley, til að horfa á fótboltaleik með Sunderland.
„Það sýnir enga iðrun eða tillitssemi gagnvart móður okkar eða fjölskyldu okkar,“ sagði Julie Francis, elsta dóttir Stephenson, eftir dómsuppkvaðninguna.
Samkvæmt dómaranum hefði Stokoe getað átt yfir höfði sér allt að 18 ára fangelsisdóm, en refsingin var milduð meðal annars vegna þess að hann gaf sig fram við lögreglu rúmri klukkustund eftir slysið og játaði brotið. Hann mun þurfa að sitja helming dómsins inni.
Dómarinn Robert Adams sagði að Stokoe hefði ekki ætlað sér að drepa neinn, en að háttsemi hans hefði engu að síður verið stórhættuleg.
Auk fangelsisdómsins var honum bannað að aka næstu átta árin og fjóra mánuðina.