fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fókus

Fólk stendur á gati þegar það kemst að því hvað hún er gömul

Fókus
Þriðjudaginn 19. maí 2026 11:15

Andrea er í toppformi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin brasilíska Andréa Sunshine hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir ótrúlegt líkamlegt form sitt og agaðan lífsstíl. Hún eyðir allt að sex klukkustundum í ræktinni á degi hverjum og það þrátt fyrir að vera orðin 56 ára amma.

Andréa, sem býr til skiptis í London og Amsterdam, hefur safnað yfir 475 þúsund fylgjendum á Instagram þar sem hún deilir með fylgjendum sínum upplýsingum um æfingar sínar, mataræði og ráðleggingum um heilbrigðan lífsstíl.

Hún segir lykilinn að árangrinum vera sambland af miklum sjálfsaga, reglulegri þjálfun og próteinríku mataræði.

Í frétt Daily Star segir Andréa að hún framkvæmi 200 hnébeygjur á hverjum degi auk þess að stunda styrktaræfingar þar sem áherslan er á kjarnavöðvana í kviðnum og bakinu.

Fram kemur að fólk eigi erfitt með að trúa því að hún sé orðin 56 ára, enda í betra formi en flestar yngri konur.

Árangurinn hefur ekki aðeins skilað henni vinsældum á netinu heldur einnig umtalsverðum tekjum. Samkvæmt henni sjálfri þénar hún um 10 þúsund pund á mánuði, um 1,6 milljónir króna, í gegnum ýmis verkefni sem tengjast líkamsrækt og samfélagsmiðlum.

Andréa býður einnig upp á einkatíma á netinu þar sem hún sýnir æfingar gegn greiðslu. Hún segir marga aðdáendur hafa sýnt henni mikinn stuðning, bæði með gjöfum og fjárhagslegri aðstoð.

„Í fyrsta sinn í langan tíma finnst mér fólk meta ekki bara útlitið mitt heldur líka alla vinnuna og fórnirnar sem liggja að baki,“ segir hún.

Hún segir að áhuginn á sterkum og vöðvastæltum konum hafi aukist á undanförnum árum og að hún hafi fundið sinn sess í samfélagi fólks sem kann að meta þann lífsstíl.

Andréa segist vilja hvetja fólk á öllum aldri til að hugsa betur um heilsuna og minnir á að aldur þarf ekki að vera hindrun þegar kemur að líkamsrækt og vellíðan.

„Margir halda að lífið breytist eftir fimmtugt. Ég vil sýna að það getur í raun verið rétt að byrja,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“
Fókus
Í gær

Jónas Sen tætir í sig tónleika í Hörpu: „Mest langaði mig til að standa upp og öskra“

Jónas Sen tætir í sig tónleika í Hörpu: „Mest langaði mig til að standa upp og öskra“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heimsþekkt söngkona hvílir einkennisútlitið og sýnir sitt rétta andlit

Heimsþekkt söngkona hvílir einkennisútlitið og sýnir sitt rétta andlit
Fókus
Fyrir 2 dögum

Læknirinn sem kallaði Friends-leikarann fábjána áfrýjar og segist hafa verið „ekkert annað en dópsali“ 

Læknirinn sem kallaði Friends-leikarann fábjána áfrýjar og segist hafa verið „ekkert annað en dópsali“ 
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu

Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sveinn Andri og Vigdís gift

Sveinn Andri og Vigdís gift