fbpx
Þriðjudagur 09.júní 2026
Pressan

Setti ótrúlegt heimsmet á Everest-fjalli

Pressan
Mánudaginn 18. maí 2026 14:30

Kami Rita Sherpa getur ekki hætt að fara upp á Everest. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nepalinn Kami Rita Sherpa komst á topp Everest-fjalls um helgina. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þetta var 32. ferðin hans upp á topp.

Enginn hefur farið fleiri ferðir og raunar var Kami þarna að slá eigið heimsmet.

Þrátt fyrir að vera orðinn 56 ára er hann enn í fullu fjöri og virðist hann hvergi nærri hættur.

Á sama tíma komst Lhakpa Sherpa á toppinn í ellefta sinn og hefur engin kona komist þangað oftar.

Kami fæddist í sama þorpi og Tenzing Norgay, en eins og margir vita var Tenzing fyrstur til að klífa Everest ásamt Edmund Hillary árið 1953.

Hann komst fyrst á toppinn árið 1994 og hefur komist þangað á hverju ári síðan, að árunum 2014, 2015 og 2020 undanskildum. Sum tímabilin hefur hann farið upp tvisvar.

Meðal fjallgöngumanna sem ekki eru sherpar á Bretinn Kenton Cool metið en hann hefur klifið Everest 19 sinnum. Þar á eftir koma Bandaríkjamennirnir Dave Hahn og Garrett Madison með 15 tindferðir hvor.

Cool og Madison eru nú staddir á Everest í þeirri von að bæta sextándu ferðinni við.

Alls hafa rúmlega átta þúsund göngugarpar sigrast á Everest-fjalli frá árinu 1953. Alls voru gefin út 492 gönguleyfi á fjallið á yfirstandandi vertíð sem hófst í mars og endar síðar í þessum mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 2 dögum

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin