
Í daglegu máli er oft talað um broken heart-syndrome eða „brostið hjarta-heilkenni“. Heilkennið getur komið fram við tilfinningalegt álag eða áfall, til dæmis ástvinamissi eða sambandsslit.
Ein þeirra sem tekur þátt í rannsókninni er Brenda Young, 57 ára kona frá Skotlandi, sem greindist með heilkennið eftir að hafa orðið vitni að andláti móður sinnar í nóvember síðastliðnum.
Takotsubo-heilkenni er hjartasjúkdómur sem oft er ruglað saman við hefðbundið hjartaáfall. Einkennin geta verið svipuð, meðal annars miklir brjóstverkir og öndunarerfiðleikar, en orsökin er önnur.
Young lýsti því í viðtali við Mirror hvernig hún fann skyndilega fyrir yfirþyrmandi verk í brjósti skömmu eftir að móðir hennar lést.
„Ég vissi að eitthvað alvarlegt væri að. Fjölskyldan mín var öll við rúmstokk móður minnar og ég hugsaði með mér hvernig ég gæti sagt þeim að ég væri með brjóstverk,“ sagði hún.
Læknar töldu í fyrstu að um hjartaáfall væri að ræða, en eftir rannsóknir kom í ljós að hún hafði fengið Takotsubo-kast.
Ólíkt hefðbundnu hjartaáfalli er Takotsubo-heilkenni ekki orsakað af stíflu í kransæðum heldur veikingu eða truflun í starfsemi hjartavöðvans sjálfs. Þrátt fyrir alvarleika sjúkdómsins er engin staðfest meðferð til við honum í dag.
Rannsóknin í Aberdeen er fjármögnuð af bresku heilbrigðisrannsóknastofnuninni NIHR og tekur til nærri eitt þúsund sjúklinga frá 40 sjúkrahúsum víðs vegar um Bretland. Vísindamenn og læknar frá meðal annars Aberdeen, Glasgow, Edinborg, Leeds, Leicester og Belfast koma að verkefninu.
Í rannsókninni verður prófaður lyfjaflokkur sem kallast renín-angíótensínkerfis-hemlar, eða RAS-hemlar, en þeir eru nú þegar notaðir við meðferð hjartaáfalla og háþrýstings. Markmiðið er að kanna hvort lyfin geti dregið úr hættu á dauðsföllum, hjartabilun, heilablóðföllum og endurteknum Takotsubo-köstum.
Að sögn rannsakenda búa margir sjúklingar við óvissu þar sem engar skýrar meðferðarleiðir hafa verið þróaðar til þessa.
„Við vonum að rannsóknin leiði annað hvort í ljós fyrstu gagnreyndu meðferðina við Takotsubo-heilkenni eða hjálpi okkur að beina leitinni að öðrum lausnum,“ segir Dana Dawson, prófessor við Aberdeen-háskóla og einn af leiðtogum verkefnisins, í samtali við Mirror.
Takotsubo-heilkenni greinist hjá meira en 5.000 einstaklingum árlega í Bretlandi og talið er að einn af hverjum tíu sem fær brátt kast látist af völdum þess.
Sérfræðingar telja því að niðurstöður rannsóknarinnar gætu haft veruleg áhrif á meðferð hjartasjúklinga um allan heim.