fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fréttir

Framkoma Miðflokksmanna stendur í Sjálfstæðismönnum – Greinar Katrínar og Ólafs rista djúpt

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 19. maí 2026 12:30

Sjálfstæðismenn eru reiðir Ólafi og Katrínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framkoma margra Miðflokksmanna í kosningabaráttunni stendur í Sjálfstæðismönnum við myndun meirihluta. Almennt er oddvitanum Ara Edwald treyst en óvissa er hvort hann, sem óreyndur stjórnmálamaður, hafi stjórn á sínu fólki.

Fastlega er búist við því að eftir mikinn kosningasigur í borgarstjórnarkosningunum á laugardag myndi Sjálfstæðismenn meirihluta með annað hvort Miðflokknum eða Framsóknarflokknum og Viðreisn.

Óreyndur leiðtogi

Að sögn heimildarmanna innan Sjálfstæðisflokksins stendur þó framkoma Miðflokksmanna í kosningabaráttunni í Sjálfstæðismönnum. Ekki aðeins Mörtu Guðjónsdóttur og Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa sem gengu til liðs við Miðflokkinn, heldur einnig annarra.

Almennt ríki traust í garð Ara Edwald, oddvita flokksins, en stóra spurningin sé hvort hann hafi nógu mikla stjórn á sínu fólki. Hafa ber í huga að Ari er alveg óreyndur í stjórnmálum og Miðflokkurinn hefur reynst vera óheflað afl og minni agi innan þess flokks en flestra annarra.

Leiðrétti aðeins á Facebook

Meðal þess sem stendur í Sjálfstæðismönnum er grein Katrínar Magnúsdóttur í Grafarvogs- og Árbæjarblaðinu þar sem hún sakaði Björn Gíslason, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um óheilindi.

Í greininni sagði Katrín, sem skipar 8. sæti á lista Miðflokksins, Björn hafa sýnt hræsni varðandi skipulagsmál, bílastæðamál og borgarlínu. Sagði hún að Björn hefði samþykkt þrengingar á Bæjarhálsi sem var rangt. Í sömu grein réðist Katrín á Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, og sagði hana hafa gengið í lið með Samfylkingunni um að fækka bílastæðum í borginni.

Katrín leiðrétti seinna það að Björn hefði stutt þrenginguna en aðeins í stuttri færslu á Facebook.

Harðorð grein Ólafs um hjónin

Þá er það einnig grein Ólafs Kr. Guðmundssonar, sem er titlaður varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er genginn í Miðflokkinn og hefur verið í framboði fyrir hann. Hann skrifaði harðorða grein gegn Hildi og Jóni Skaftasyni eiginmanni hennar í Morgunblaðinu sem fór mjög illa í Sjálfstæðismenn.

Reifaði Ólafur yfirtöku Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Skeljungi undir félaginu Streng Holding, undir framkvæmdarstjórn Jóns. Hildur hafi tekið þátt í að afgreiða samninga um bensínstöðvarlóðir. Sagði Ólafur Hildi hafa verið vanhæfa og að málið bendi til ósanninda og óheilinda.

Stóra spurningin

Heimildarmenn DV segja að Sjálfstæðismenn líti á oddvitana Ara, Einar Björgu sem fólk sem hægt sé að vinna með. Stóra spurningin sé hins vegar hvort Ari hafi stjórn á fólki neðar á listanum. Hugsanlega sé það betra til lengri tíma litið að hafa Miðflokkinn í minnihluta. Engin leið sé að vita hvort allir verði enn þá sáttir þegar líður á kjörtímabilið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“