fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Svakaleg tíðindi frá Englandi – Southampton vikið úr keppni

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 17:52

Frá Saint Mary's, heimavelli Southampton.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Búið er að reka Southampton úr umspili ensku B-deildarinnar fyrir njósnir á æfingasvæði Middlesbrough í aðdraganda undanúrslitaeinvígis liðanna. Boro tekur sæti þeirra í úrslitaleiknum gegn Hull.

Málið hefur vakið mikla athygli, en Southampton var með útsendara að fylgjast með æfingu Boro þann 7. maí. Liðið vann svo tveggja leikja einvígi liðanna og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum um sæti í ensku úrvalsdeildinni gegn Hull á Wembley.

Boro hafði hins vegar tilkynnt málið til ensku deildarinnar sem tók það fyrir. Stranglega bannað er að fylgjast með æfingu andstæðings innan við 72 klukkustundum fyrir leik.

Southampton játaði samkvæmt tilkynningu deildarinnar að hafa gerst brotlegt í þó nokkrum liðum í málinu. Niðurstaðan er sem áður segir, auk þess sem Dýrlingarnir byrja með fjögur stig í mínus í B-deildinni á næstu leiktíð.

Það verða því Hull og Middlesbrough sem mætast í úrslitaleik um sæti í deild þeirra bestu á laugardag. Hull, sem hafnaði í sjötta sæti deildarinnar, sló Millwall, sem endaði í þriðja sæti, óvænt út í undanúrslitunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Klopp mjög óhress með gærkvöldið

Klopp mjög óhress með gærkvöldið
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi

Trippier sagður brjálaður – Skrifaði undir í vikunni en skoðar að rifta samningi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn

Arsenal aftur farið að skoða spænska landsliðsmanninn