fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Móðirin hringdi í lögreglu í gærmorgun – Skömmu síðar hófst blóðug árás

Pressan
Þriðjudaginn 19. maí 2026 08:30

Cain Clark er sagður vera annar þeirra sem framdi voðaverkið. Í árásinni lést meðal annars öryggisvörðurinn Amin Abdullah (t.h). Samsett mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir táningar sem grunaðir eru um mannskæða árás við mosku í San Diego í Bandaríkjunum í gær fundust látnir eftir að hafa svipt sig lífi.

Þrír létust, þar á meðal átta barna faðir sem starfaði sem öryggisvörður. Hann hefur verið hylltur sem hetja og sagður hafa komið í veg fyrir að fleiri létust.

Árásin átti sér stað fyrir utan Islamic Center of San Diego um klukkan 11:40 staðartíma í gær, rétt fyrir klukkan 19 að íslenskum tíma. Lögregla segir að skotmennirnir hafi hafið skothríð á fólk sem var statt við moskuna áður en þeir flúðu vettvang.

Skömmu síðar fundust þeir látnir í bifreið sem þeir voru á. Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum fundust þar einnig vopn sem búið var að merkja með hatursfullum skilaboðum og bensínbrúsi með nasistatákni.

Hafði samband við lögreglu

Hinir grunuðu eru sagðir vera Cain Clark, 17 ára framhaldsskólanemi og glímukappi, og Caleb Vazquez, 18 ára. Lögregla segir báða hafa látist af völdum skotsára.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að lögregla hafi þegar verið að leita að piltunum áður en árásin var gerð. Móðir annars þeirra er sögð hafa haft samband við yfirvöld um morguninn og greint frá því að sonur hennar hefði tekið bifreið hennar og nokkur vopn af heimilinu. Hún sagði jafnframt að hann væri í sjálfsvígshættu.

Scott Wahl, lögreglustjóri í San Diego, segir að lögregla hefði tekið ábendingunum alvarlega og leit að drengjunum hafist strax. Lögregla notaði meðal annars sjálfvirkt númeraplötulestrarkerfi til að reyna að staðsetja þá áður en árásin var gerð.

Samkvæmt lögreglu voru táningarnir vopnaðir meðal annars 9 mm skammbyssu, haglabyssu og riffli af tegundinni Mini-14.

Sagður hafa bjargað mannslífum

Þegar lögregla kom á vettvang fundust þrír látnir fyrir utan bygginguna. Þar á meðal var öryggisvörðurinn Amin Abdullah, en samstarfsmenn hans segja hann hafa brugðist skjótt við og fórnað lífi sínu til að verja gesti moskunnar.

„Hann bjargaði án efa mannslífum í dag,“ sagði lögreglustjórinn.

Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, lýsti yfir miklum óhug vegna árásarinnar og lýsti að sama skapi yfir stuðningi við múslimasamfélagið í San Diego. „Hatur á ekki heima í Kaliforníu,“ sagði ríkisstjórinn í yfirlýsingu.

Donald Trump forseti sagði einnig að um væri að ræða „hræðilegt mál“ og hét því að yfirvöld myndu rannsaka árásina ítarlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli
Pressan
Í gær

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt