
Honum var sleppt úr fangelsi á fimmtudag eftir að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian greiddi jafnvirði rúmlega sjö milljóna króna fyrir tryggingu hans.
Richard hefur í nokkur skipti komist býsna nálægt dauðanum, ef svo má segja, því í þrígang hefur hann borðað „síðustu máltíðina“ sína.
Hann var dæmdur fyrir að fyrirskipa morð á yfirmanni sínum, Barry Van Treese, árið 1997. Barry þessi var eigandi mótels í Oklahoma en annar maður, Justin Sneed, var einnig dæmdur í málinu og hlaut hann lífstíðarfangelsi.
Sagði Justin að Richard hefði borgað honum 10 þúsund dollara fyrir að drepa Barry. Óumdeilt er að Justin varð Barry að bana en deilt var um hvort það hafi verið að skipun Richards eins og saksóknarar héldu fram á sínum tíma.
Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi þann úrskurð í febrúar 2025 að Richard skyldi fá ný réttarhöld. Grundvallaðist úrskurðurinn á þeirri staðreynd að Justin sagði ósatt um ýmsa hluti fyrir dómi. Þá steig fyrrverandi samfangi hans fram og lýsti því að Justin hefði sagst hafa „leitt Richard í gildru“ í málinu og komið sök á hann.
Þá kom síðar í ljós að Justin glímdi við alvarleg geðræn veikindi þegar morðið var framið. Saksóknarar vissu af því en kusu að halda þeim upplýsingum frá kviðdómendum.
Glossip hefur alla tíð neitað sök og sagt að Sneed hafi logið til að bjarga eigin lífi. Málið gegn honum byggðist að mestu leyti á vitnisburði Sneeds og lítið af efnislegum sönnunargögnum tengdu Glossip beint við morðið.
Kim Kardashian hefur barist fyrir máli Glossips frá árinu 2013 ásamt kvikmyndaframleiðandanum Scott Budnick og réttarbótasinnanum Jason Flom.
Kardashian hefur á síðustu árum orðið einn þekktasti talsmaður umbóta í bandaríska refsikerfinu og komið að fjölda umdeildra sakamála. Talskona Kardashian staðfesti við fjölmiðla að hún hefði greitt tryggingarféð sem gerði Glossip kleift að yfirgefa fangelsið á fimmtudag.
Þegar Glossip gekk út úr Oklahoma-ríkisfangelsinu hélt hann í hönd eiginkonu sinnar, Leu, og var með ökklaband þar sem hann verður áfram undir eftirliti meðan málið heldur áfram fyrir dómstólum. Lögfræðingar hans telja meiri líkur en minni séu á því að hann verði alfarið sýknaður í málinu.