fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 20:30

Lily Phillips. Mynd/Instagram/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lily Phillips varð heimsþekkt í árslok 2024 þegar hún „afrekaði“ að stunda kynlíf með 101 karlmanni á einum degi. En þrátt fyrir að hún sé vön að hafa mikið fyrir stafni, þá er hún búin að finna sér mann sem hún telur að geti orðið lífsförunautur hennar.

Hann heitir Sammy og hefur ekkert á móti því að hún sinni starfi sínu sem klámstjarna en hann hefur samt sem áður dregið ákveðna rauða línu sem Lily má aldrei fara yfir.

Þau kynntust í gegnum sameiginlegan vin og því vissi hann vel hvað hann var að fara út í. Hann er sagður mjög hugulsamur og tilfinninganæmur maður sem þjáist ekki af eitraðri karlmennsku eða öfundsýki vegna OnlyFans-ferils Lily.

Hann sýnir starfi hennar að sögn svo mikinn skilning að hann skildi eitt sinn eftir súkkulaði og kort með textanum: „Ég er svo stoltur af þér, því þú leggur svo mikið á þig í vinnunni,“ þegar hún kom heim eftir upptöku á atriði þar sem hún stundaði kynlíf með fjölda karla.

Þrátt fyrir að Sammy sætti sig við að Lily stundi kynlíf með öðrum körlum fyrir framan myndavélar, þá hefur hann sett mjög skýr mörk um eitt sem hún má ekki. Það er að kyssa aðra karla.

Honum finnst kossar hans og Lily vera eitt það nánasta sem þau eiga saman og vill vera viss um að hún kyssi enga aðra karla.

Lily hefur að sögn ekkert á móti þessari reglu því hún sér kossa sem mjög persónulega athöfn sem þarf ekki að vera hluti af vinnunni hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi
Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran