fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Göngumaður skildi eftir skilaboð í talhólfi föður síns rétt áður en hann var drepinn

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 18:30

Anthony Pollio

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anthony Pollio, 33 ára, var einn á göngu í Glacier þjóðgarðinum í Montana þegar hann hvarf skyndilega. Hann var í tveggja vikna ferð og var alvanur útivistar- og göngumaður.

Talið er að björn hafi orðið honum að bana í þjóðgarðinum. Rétt áður en það gerðist skildi Pollio eftir skilaboð í talhólfi föður síns.

People skýrir frá þessu og segir að Pollio hafi hringt í föður sinn þegar hann var að ganga eftir göngustíg í þjóðgarðinum. Hann hafi skilið eftir skilaboð um að hann elskaði föður sinn.

Nokkrum dögum síðar fannst lík hans á afskekktu gróðurvöxnu svæði.

Pollio ætlaði að ganga að Mount Fire Lookout og hafði skýrt frá áætlun sinni, um að ljúka við að ganga leiðina, áður en hann hvarf.

Eftir að ættingjar hans tilkynntu að hann væri horfinn, hófst leit að honum í þjóðgarðinum. Lík hans fannst um 50 metra frá Mount Brown gönguleiðinni.

Í tilkynningu frá þjóðgarðinum segir að verið sé að rannsaka málið en grunur leiki á að bjarndýr hafi orðið Pollio að bana. Einnig kemur fram að sönnunargögn bendi til að árásin hafi komið Pollio mjög á óvart. Áverkar á líkinu er sagðir líkjast áverkum eftir bjarndýr.

Ef rétt reynist að bjarndýr hafi orðið Pollio að bana, þá er það fyrsta banvæna bjarndýraárásin í þjóðgarðinum síðan 1998.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi

Vitnisburður sjö ára drengs sendi móður hans í lífstíðarfangelsi
Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“

Móðir saklaus sökuð um þjófnað í Sports Direct – „Já, af því að þú ert þjófur!“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli

Nýjar upplýsingar í óhugnanlegu máli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran