fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 21:00

Stacey Feldman

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stacy vissi líklega mætavel að hjónabandi hennar væri lokið þegar hún fékk dularfullan tölvupóst en hún hafði líklega enga hugmynd um að síðar um daginn myndi hryllilegur atburður eiga sér stað.

Hún var þess fullviss að hún hefði gifst hinum fullkomna manni. Manni sem var ástríkur, fyndinn og umhyggjusamur. En þegar hún fékk tölvupóstinn snemma að morgni dag einn í mars 2015 áttaði hún sig samstundis á að eiginmaður hennar var langt frá því að vera fullkominn.

En það sem Stacy, sem bjó í Denver í Colorado í Bandaríkjunum, vissi ekki var að tölvupósturinn myndi kosta hana lífið síðar um daginn.

Neyðarhringingin

Það var hinn, að því talið var, ástríki eiginmaður Stacy, Robert Feldman, sem hringdi í neyðarlínuna og virtist í miklu uppnámi þegar hann sagðist vera nýkominn heim og hefði fundið eiginkonu sína lífvana í baðkarinu.

Sjúkraflutningamenn voru strax sendir á vettvang. Þeir áttuðu sig strax á að ekki væri hægt að bjarga lífi Stacy.

Robert Feldman

 

 

 

 

 

 

Robert virtist óhamingjusamur og í sjokki en um leið var hann ansi skrafhreifinn þegar hann var spurður hvort hann hefði einhverja hugmynd um af hverju Stacy, sem var 44 ára, lá látin í baðkarinu.

Hann sagðist halda að hún hafi drukkið of mikið og hafi dottið í baðinu og hafi misst meðvitund og hafi síðan drukknað.

Grunsamleg hegðun

En hvorki sjúkraflutningamenn né lögregla trúðu þessari skýringu hans. Þeir furðuðu sig meðal annars á að ekkert vatn var á gólfinu. Vatn hlyti af hafa slest út á gólf ef hún hefði dottið ofan í baðið.

Það dró ekki úr dulúðinni að Robert vildi ekki veita heimild til að lík Stacy yrði krufið. Myndi ástríkur eiginmaður ekki vilja leggja allt í sölurnar til að komast að dánarorsök eiginkonunnar?

Það var því engin furða að lögreglan fékk sífellt meiri áhuga á hver Robert væri í raun og veru.

Það var þó ekki fyrr en önnur kona, Susan McBride, gaf sig fram og nefndi dularfulla tölvupóstinn, sem Stacy fékk, sem málið leystist.

Mikilvægt vitni

Susan hafði fyrir tilviljun lesið minningargrein um Stacy í dagblaði. Henni brá mikið og fékk mikið áfall þegar hún las um andlátið. Áfallið varð ekki minna þegar hún áttaði sig á að Stacy hafði látist sama dag og hún sendi henni dularfulla tölvupóstinn.

Í tölvupóstinum, sem Susan sendi Stacy klukkan 06.20 þann 1. mars 2015, skrifaði hún að hún hefði átt í ástarsambandi við Robert. Hún sagðist hafa komist í kynni við hann á Tinder. Hann hefði sagst vera fráskilinn og reiðubúinn til að finna ástina á nýjan leik.

 

 

Stacey og Robert Feldman

 

 

 

 

 

 

 

 

En þegar leið á sambandið fór hana að gruna að saga Roberts væri ekki sönn og að lokum komst hún að því að hann hefði logið. Hann var kvæntur Stacy. Þess vegna sendi hún tölvupóstinn til Stacy og sagði henni frá framhjáhaldinu.

Morð af yfirlögðu ráði

Þegar Susan last að Stacy hefði látist sama dag og hún sendi henni tölvupóstinn, var hún sannfærð um að eitthvað hræðilegt hefði gerst, líklega glæpur.

Hún gaf sig fram við lögregluna og sagðist hafa átt í ástarsambandi við Robert og að hún væri hrædd um að hann hefði myrt Stacy af því að hún hafði komist að framhjáhaldinu.

Lögreglan beindi því sjónum sínum alfarið að Robert og ekki leið á löngu áður en hann var handtekinn og ákærður fyrir að hafa myrt eiginkonu sína.

Fyrir dómi sagði saksóknarinn að Stacy hefði dáið af því að hún hafði borið framhjáhaldið upp á Robert eftir að hún hafði lesið tölvupóstinn.

Hann sagði að Stacy hefði verið beitt löngu og hrottalegu ofbeldi. Áverkarnir á henni hafi ekki verið eftir hjartahnoð eða vegna þess að hún var dregin upp úr baðkarinu. Þeir hafi verið sönnun um hrottalegt ofbeldi.

Kviðdómurinn var aðeins tvær klukkustundir að komast að niðurstöðu. Robert Feldman var sekur um morð að yfirlögðu ráði.

Í apríl 2022 var hann dæmdur í ævilangt fangelsi.

Byggt á umfjöllun  Mirror og New York Post.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Í gær

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan
Pressan
Í gær

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“
Pressan
Í gær

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“

Fjölskyldufríið byrjaði með martröð: Ölvaðir farþegar, hvorki vott né þurrt og klukkustunda töf vegna neyðarástands – „Stressandi og ógnvekjandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran

Bandaríkin svara fyrir sig og gera árás á Íran
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hundruð heimila tekin yfir af glæpagengjum í Bretlandi í hverri viku

Hundruð heimila tekin yfir af glæpagengjum í Bretlandi í hverri viku