
The Independent segir að einnig hafi öll ákvæði um sameiningu við Suður-Kóreu verið fjarlægð.
Suðurkóreska dagblaðið The Chosun Daily hefur eftir sérfræðingum í málefnum Norður-Kóreu að þetta geti verið til raun til að láta Norður-Kóreu líta út fyrir að vera „eðlilegt“ ríki.
Í nýju útgáfu stjórnarskrárinnar er forðast að nota fjandsamlegt orðalag um Suður-Kóreu og hugmyndafræðilegar tilvitnanir hafa verið afnumdar, til dæmis um að þetta sé stjórnarskrá Kim Il-sung og Kim Jong-il.
Breytingarnar voru samþykktar á marsfundi þjóðþingsins.