fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 15:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir nota USB-tengið í bílnum bara til að hlaða farsímann. Það er auðvitað mjög praktískt en um leið kannski ákveðin synd að það sé ekki notað til fleiri hluta því það er auðveldlega hægt.

USB-tengið býður upp á miklu fleiri möguleika en margir vita. Með því að nota það rétt, getur það aukið þægindi, aukið öryggið og gert bílferðina betri.

Margir bílaframleiðendur bjóða upp á hugbúnaðaruppfærslur í gegnum USB. Það er hægt að sækja uppfærslurnar á heimasíður þeirra, afrita á USB-drif og hlaða beint inn í bílinn.

Þetta er yfirleitt einfalt ferli og það er útskýrt skref fyrir skref á tölvuskjá bílsins. Með þessu er hægt að tryggja að bíllinn sé alltaf með uppfærðan hugbúnað án þess að þurfa að fara á verkstæði til að láta gera þetta.

Það er líka hægt að tengja myndavélar við USB-tengið. Þá kviknar sjálfkrafa á þeim þegar bíllinn er gangsettur og slökknar þegar drepið er á honum.

Svo er auðvitað hægt að hlusta á tónlist með því að stinga USB-drifi, fullu af tónlist, í samband. Það virkar kannski svolítið gamaldags á tímum streymisveitna en getur verið gott til að þurfa ekki að treysta á netsamband eða gagnamagn.

Svo er hægt að tengja farsímann við tengið með snúru en þannig færðu aðgang að leiðsögukerfum, tónlist og skilaboðum í gegnum Apple CarPlay eða Android Auto.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Í gær

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný