
Tottenham hefur áhuga á kantmanninum Jean-Matteo Bahoya hjá Frankfurt.
Bahoya, sem er 21 árs og leikur með U-21 árs landsliði Frakklands, hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í Þýskalandi, en hann kom að átta mörkum á nýafstaðinni leiktíð.
Tottenham vill styrkja sóknarleik sinn eftir afar erfitt tímabil þar sem liðið endaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Frankfurt ku vilja allt að 60 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem er einkum þekktur fyrir gífurlegan hraða og var einn sá sneggsti í Þýskalandi á leiktíðinni.