
Jordan Henderson segir mikilvægt að leikmenn enska landsliðsins venji sig sem fyrst við hitann í Bandaríkjunum fyrir HM sem hefst í næstu viku.
England hefur komið sér fyrir í Flórída þar sem hitinn fór upp í 32 gráður á fyrstu æfingu liðsins í vikunni.
„Við þurfum að venja okkur við þessar aðstæður og byggja upp getu til að spila í hitanum,“ sagði Henderson.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, hvatti leikmenn sína meðal annars til að eyða sumarfríinu í Bandaríkjunum til að aðlagast bæði hitanum og tímamismuninum.
Kobbie Mainoo sagði einnig að leikmenn væru að leggja hart að sér til að venjast rakanum og hitanum.
„Þetta er allt öðruvísi en ég hef áður spilað í, en vonandi verður maður búinn að venjast áður en mótið hefst,“ sagði Mainoo.
England mætir Króatíu í fyrsta leik sínum á HM þann 17. júní.