fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
433Sport

Birtir langt myndband þar sem hann tjáir sig loks um njósnahneykslið

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 2. júní 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tonda Eckert, knattspyrnustjóri Southampton, hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um njósnahneykslið sem varð til þess að félaginu var vikið úr umspili ensku B-deildarinnar.

Southampton var vísað úr umspilinu og dæmt til að hefja næsta tímabil með fjögur stig í mínus eftir að hafa viðurkennt brot á reglum deildarinnar vegna njósna um andstæðinga.

Rannsókn var hrint af stað eftir að Middlesbrough kvartaði yfir því að starfsmaður Southampton hefði fylgst með æfingu liðsins fyrir undanúrslitaeinvígi liðanna.

Í myndbandi sem birt var á miðlum félagsins biður Eckert stuðningsmenn, leikmenn og önnur félög afsökunar og sagðist bera fulla ábyrgð á málinu.

Hann sagði að slíkar aðferðir hefðu verið algengar þar sem hann starfaði áður á Ítalíu og vísaði jafnframt til þess að æfingar liða í Þýskalandi hefðu oft verið undir smásjá andstæðinga.

Eckert lagði þó áherslu á að hann væri ekki að reyna að afsaka gjörðir sínar heldur útskýra bakgrunn málsins. Hann viðurkenndi að hann hefði átt að þekkja reglur ensku deildarinnar betur.

„Ég er ungur þjálfari, ég gerði mistök og tek fulla ábyrgð,“ sagði Eckert, sem kvaðst vona að stuðningsmenn félagsins gætu með tímanum fyrirgefið honum.

Samkvæmt fréttum sögðu yngri starfsmenn Southampton fyrir óháðri aganefnd að Eckert hefði sett mikinn þrýsting á þá til að njósna um andstæðinga.

Southampton áfrýjaði bæði brottvísuninni úr umspilinu og stigafrádrættinum, en án árangurs.

Hér að ofan má horfa á afsökunarbeiðni Eckert í heild.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Lætur Liverpool strax vita að hann vilji að þessir fimm verði keyptir í sumar

Lætur Liverpool strax vita að hann vilji að þessir fimm verði keyptir í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum
Beckham girnist Guardiola
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kemur frítt frá City og gerir tveggja ára samning við Barcelona

Kemur frítt frá City og gerir tveggja ára samning við Barcelona
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Líkur á að Rashford mæti til æfinga hjá United – Þessi félög hafa áhuga

Líkur á að Rashford mæti til æfinga hjá United – Þessi félög hafa áhuga
433Sport
Í gær

Keyptu köttinn í sekknum um helgina – Þetta kom í ljós þegar límmiði var fjarlægður

Keyptu köttinn í sekknum um helgina – Þetta kom í ljós þegar límmiði var fjarlægður
433Sport
Í gær

Norðmenn segja þetta vera ástæður þess að Freyr var rekinn úr starfi í gær

Norðmenn segja þetta vera ástæður þess að Freyr var rekinn úr starfi í gær