
Chelsea hefur hafnað nokkrum fyrirspurnum um varnarmanninn Josh Acheampong samkvæmt BBC.
Acheampong, sem er 20 ára og uppalinn hjá félaginu, er sagður vera ósnertanlegur hjá Chelsea og félagið vilji alls ekki selja hann í sumar.
Þrátt fyrir það er óvissa um framtíð leikmannsins þar sem fólk í kringum hann hefur ekki fengið skýr svör um hlutverk hans eða spilatíma til framtíðar. Hann spilaði 17 leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, þar af níu sem varamaður.
Arsenal, Newcastle og Crystal Palace eru sögð fylgjast grannt með stöðunni, en Bournemouth hefur einnig áhuga á honum. Acheampong er samningsbundinn Chelsea til ársins 2029.