
Enskir miðlar segja Andoni Iraola, sem er að taka við Liverpool, hafa óskað eftir því að skrifa aðeins undir tveggja ára samning.
Spánverjinn tekur við liðinu í kjölfar brottreksturs Arne Slot, en aðeins á eftir að staðfesta skiptin.
Sem fyrr segir vildi Iraola aðeins tveggja ára samning og er þetta ekki í fyrsta sinn sem hann biður um slíkt. Fór hann sömu leið í starfi hjá Bournemouth, Rayo Vallecano og Mirandes
Iraola hefur sagt í viðtölum að hann vilji frekar vinna sér inn áframhaldandi traust yfirmanna sinna og að endurnýja þurfi traustið frá báðum hliðum reglulega.
Iraola gerði frábæra hluti hjá Bournemouth og stýrði liðinu í Evrópudeildina á nýafstaðinni leiktíð.