fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
433Sport

Kemur frítt frá City og gerir tveggja ára samning við Barcelona

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 2. júní 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bernardo Silva virðist vera á leið til Barcelona eftir farsælan feril hjá Manchester City ef marka má nýjustu fréttir frá Spáni.

AS greinir frá því að portúgalski miðjumaðurinn sé við það að skrifa undir tveggja ára samning við katalónska stórliðið. Silva, sem er 31 árs gamall, hefur verið orðaður við Barcelona um árabil og virðist draumaflutningurinn nú loksins vera að verða að veruleika.

Samkvæmt fréttinni vill Silva að félagaskiptin verði staðfest opinberlega fyrir lok vikunnar. Hann kemur frítt frá Manchester City.

Silva gekk til liðs við City frá Monaco árið 2017 og hefur síðan verið einn af lykilmönnum liðsins. Hann hefur unnið sex Englandsmeistaratitla, Meistaradeild Evrópu og fjölda annarra bikara með félaginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Beckham girnist Guardiola

Beckham girnist Guardiola
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Líkur á að Rashford mæti til æfinga hjá United – Þessi félög hafa áhuga

Líkur á að Rashford mæti til æfinga hjá United – Þessi félög hafa áhuga
433Sport
Í gær

Keyptu köttinn í sekknum um helgina – Þetta kom í ljós þegar límmiði var fjarlægður

Keyptu köttinn í sekknum um helgina – Þetta kom í ljós þegar límmiði var fjarlægður
433Sport
Í gær

Norðmenn segja þetta vera ástæður þess að Freyr var rekinn úr starfi í gær

Norðmenn segja þetta vera ástæður þess að Freyr var rekinn úr starfi í gær